Skip to main content

Aðalfundur Ský

Aðalfundur Ský 2025 haldinn fimmtudaginn 27. febrúar og einungis opinn skráðum félögum í Ský.

Viltu hafa áhrif á starf faghópa og dagskrá viðburða?
Gefðu kost á þér í stjórn faghóps með því að senda tölvupóst á sky@sky.is.
->Skoða faghópa og nefndir

Félagar sem ætla að mæta á fundinn þurfa að skrá sig. Skráningar þurfa að berast eigi síðar en miðvikudaginn 26. febrúar 2025.

Léttar veitingar í boði og eru félagar hvattir til að mæta og efla tengslanetið.

Nafn þátttakanda verður að vera skráð
(Name of participant must be registered)
Kennitala verður að vera 10 tölustafir án bandstriks og vera gild kennitala
(Icelandic Social Sec. number must be registered and valid - 10 digits without hyphens)
Netfang er ekki gilt
(Email address not valid)
Invalid Input

Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf skv. samþykktum félagsins

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Skýrslur nefnda og starfshópa
  3. Reikningar félagsins
  4. Lagabreytingar
  5. Ákvörðun félagsgjalda
  6. Stjórnarkjör
  7. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
  8. Nefndakjör
  9. Önnur mál

Faghópar innan Ský eru eftirtaldir og er kosið í stjórn þeirra á aðalfundi Ský. Hvetjum við félaga til að taka virkan þátt í starfinu með okkur og gefa kost á sér í stjórnir faghópa. Helstu verkefni faghópa eru að undirbúa 1-3 viðburði á vetri um málefni faghópsins.

Veldu faghóp til að sjá nánari upplýsingar um viðkomandi hóp:

Hvetjum öll áhugasöm sem vilja starfa í faghópum að bjóða sig fram.

Þau sem hafa hug á að bjóða sig fram í stjórn, faghópa eða nefndir Ský eru beðin um að senda tölvupóst á sky@sky.is sem allra fyrst.

Aðalstjórn Ský: Tilkynna þarf um framboð í stjórn Ský eigi síðar en þremur dögum fyrir aðalfund.