Skip to main content
7. apríl 2016

Forsetaframbjóðendur á samfélagsmiðlum

Það hefur eflaust ekki farið framhjá neinum að forsetakosningar fara fram á Íslandi laugardaginn 25. júní næstkomandi. Notkun samfélagsmiðla skiptir þá miklu máli til að koma sínu framboði á framfæri enda eru forsetakosningar einstaklingsframboð og þar af leiðandi mun persónulegra framboð ef svo má segja. Í þessum pistli ætla ég að taka saman gengi frambjóðenda á samfélagsmiðlum eins og staðan er í dag. Árið 2008 fór af stað mikil vinna við að koma framboði Barack Obama vel til skila á samfélagsmiðlum. Svo vel tókst til að margir vilja meina að Obama eigi samfélagsmiðlateymi sínu því að þakka að hann náði kjöri en að sjálfsögðu spila fleiri áhrifaþættir þar inn í. Þegar vel var liðið á kosningabaráttuna mátti auðveldlega sjá hver væri líklegastur til að hreppa embættið, með því einu að skoða fylgi frambjóðenda á samfélagsmiðlum – Þar var Obama með áberandi mest fylgi.

Lítið hefur borið á auglýsingum frá frambjóðendum hér á landi en ætla má að sjónvarpsauglýsingar, veggspjöld og heilsíður í blöðum verði áberandi þegar nær dregur kosningadegi. Það vekur þó furðu mína að lítið hefur farið fyrir frambjóðendum á samfélagsmiðlum því þar er á auðveldan og ódýran hátt hægt að koma sér á framfæri.

Samkvæmt nýjustu könnun Gallup meðal markaðsfólks á Íslandi er netið í fyrsta skipti í efsta sæti yfir þá miðla sem taldir eru áhrifamestu auglýsingamiðlarnir. Inn í því mengi eru meðal annars samfélagsmiðlar. Það liggur því í augum uppi að það er mikilvægt að auglýsa sig á samfélagsmiðlum, sérstaklega ef ná á til ungs fólks, en einnig af þeirri einföldu staðreynd að yfir 80% þjóðarinnar er á Facebook.

Til gamans hef ég tekið saman fylgi frambjóðenda á helstu samfélagsmiðlum. Þegar mánuður er í kosningar mun ég svo birta nýjar niðurstöður.

Það er áhugavert að sjá að eingöngu þrír frambjóðendur nýta sér Snapchat, sem er einn sterkasti miðillinn í dag til að ná til yngri markhóps. Instagram er lítið notað og Twitter. Facebook virðist vera vinsælasti samfélagsmiðill frambjóðenda en þó kemur á óvart að 4 af 12 frambjóðendum eru ekki með sérstaka framboðssíðu á Facebook og 2 frambjóðendur eru ekki á neinum samfélagsmiðli.

Athugið að þetta er að sjálfsögðu ekki hávísindaleg könnun og meira til gamans gert að velta þessu fyrir sér. Athugið að þeir sem eru með 0 fylgi á samfélagsmiðlum eru ekki með síðu á þeim miðli.

Frambjóðendurnir sem staðfest hafa framboð eru:

Vigfús Bjarni Albertsson
Framboðssíða á Facebook: https://www.facebook.com/vigfusbjarni/?fref=ts
Twitter: NEI
Instagram: https://www.instagram.com/vigfusforseti/
Snapchat: NEI
YouTube-síða: NEI
Vefsíða: http://www.vigfusbjarni.is/

Ástþór Magnússon
Framboðssíða á Facebook: https://www.facebook.com/forsetakosningar/?fref=ts
Twitter: https://twitter.com/Bessastadir
Instagram: NEI
Snapchat: https://www.snapchat.com/add/astormagg
YouTube: https://www.youtube.com/user/forsetakosningar
Vefsíða:http://forsetakosningar.is/

Heimir Örn Hólmarsson
Framboðssíða á Facebook: https://www.facebook.com/xheimir/?pnref=story
Twitter: https://twitter.com/xHeimir
Instagram: https://www.instagram.com/xheimir/
Snapchat: NEI
YouTube: https://www.youtube.com/channel/UCnmd-7i9g0uBzJutklWva6A
Vefsíða: xheimir.is

Ari Jósepsson
Framboðssíða á Facebook: https://www.facebook.com/AraliuZ/?fref=ts
Twitter: https://twitter.com/AriJosepsson
Instagram: https://www.instagram.com/arijosepsson/
Snapchat: https://www.snapchat.com/add/arijosepsson
YouTube: https://www.youtube.com/user/AriJosepsson
Vefsíða: http://arijosepsson.blog.is/blog/arijosepsson/

Þorgrímur Þráinsson
Framboðssíða á Facebook: NEI
Twitter: https://twitter.com/TThrainsson
Instagram: https://www.instagram.com/thorgrimurthrains/
Snapchat: NEI
YouTube: https://www.youtube.com/channel/UCyYtILl7CRiOVX0YgPp2LYg
Vefsíða: NEI

Hildur Þórðardóttir
Framboðssíða á Facebook: https://www.facebook.com/Hildur-%C3%9E%C3%B3r%C3%B0ard%C3%B3ttir-forsetaframbo%C3%B0-2016-586459284863662/?fref=ts
Twitter: NEI
Instagram: NEI
Snapchat: NEI
YouTube: https://www.youtube.com/channel/UCwyvibiVoBSZNPAfblAJJEw
Vefsíða: NEI

Elísabet Jökulsdóttir
Framboðssíða á Facebook: NEI
Twitter: NEI
Instagram: NEI
Snapchat: NEI
YouTube: NEI
Vefsíða: NEI

Hrannar Pétursson
Framboðssíða á Facebook: https://www.facebook.com/hrannarpeturs/?fref=ts
Twitter: https://twitter.com/hrannarp
Instagram: https://www.instagram.com/hrannarp/
Snapchat: https://www.snapchat.com/add/hrannarpeturs
YouTube: https://www.youtube.com/channel/UCv_U0o32-NC8lSZwGYWgYiA
Vefsíða: http://www.hrannarpetursson.is/

Halla Tómasdóttir
Framboðssíða á Facebook: https://www.facebook.com/halla2016/?fref=ts
Twitter: https://twitter.com/hallatomas2016
Instagram: https://www.instagram.com/hallatomas/
Snapchat: NEI
YouTube: https://www.youtube.com/channel/UCvoR-qIJb4sLTgFQFn0f_Sg
Vefsíða: http://www.halla2016.is/

Bæring Ólafsson
Framboðssíða á Facebook: https://www.facebook.com/baeringabessastadi/?fref=ts
Twitter: NEI
Instagram: NEI
Snapchat: NEI
YouTube: NEI
Vefsíða: NEI

Guðmundur Franklín
Framboðssíða á Facebook: NEI
Twitter: https://twitter.com/GundiFranklin
Instagram: https://www.instagram.com/gudmundurjonsson985/
Snapchat: NEI
YouTube: NEI
Vefsíða: NEI

Guðrún Margrét Pálsdóttir
Framboðssíða á Facebook: NEI
Twitter: NEI
Instagram: NEI
Snapchat: NEI
YouTube: NEI
Vefsíða: NEI

Þegar nær dregur kosningum mun ég síðan kafa dýpra í notkun frambjóðenda á samfélagsmiðlum og greina texta, notkun ljósmynda og annars efnis sem þeir setja þar inn. Mun sú greining birtast hér á ský.is

social like forsetaframb

Staðan á samfélagsmiðlunum

alls fylgjendur forsetafram

 

Höfundur: Ragnar Trausti Ragnarsson, markaðsfulltrúi hjá Nova

Skoðað: 3049 sinnum

Blaðið Tölvumál

Forsíða Tölvumála

Leita í vefútgáfu Tölvumála

Um Tölvumál

Tölvumál - tímarit Skýrslutæknifélags Íslands er óháð tímarit um tölvutækni og hefur verið gefið út frá árinu 1976.

Vefútgáfa Tölvumála birtir vikulega nýja grein á vef Ský og árlega er gefið út veglegt prentað tímarit undir nafninu "Tölvumál" þar sem fjallað er um tölvutækni frá ýmsum sjónarhornum og er þema blaðsins jafnan valið snemma árs og útgáfa að hausti.

Ritnefnd Ský sér um að afla efni í Tölvumál og geta allir sem áhuga hafa sent inn efni.

Um ritnefnd Tölvumála