Hugbúnaðarráðstefna
Hugbúnaðarráðstefna Ský
14. nóvember 2006 héldum við okkar árlegu hugbúnaðarráðstefnu á Grand hótel Reykjavík
Fjallað var um veflausnir frá ýmsum sjónarhornum, allt frá högun
til útfærslu og innleiðingar verkefna. Rætt var um tækni, öryggis-
og aðgangsmál og veikleikaprófanir svo dæmi séu tekin.
Dagskrá:
12:45 | Skráning þátttakenda |
13:00 | Ráðstefnustjóri setti ráðstefnuna |
13:05 | Microformats í veflausnum - Glærur - Soffía Kristín Þórðardóttir verkefnastjóri, TM Software Microformats byggir á núverandi stöðlum og í stað þess að henda því sem þegar virkar leitast microformats við að leysa einfaldari vandamál fyrst með því að aðlagast venjubundnu hegðunarmynstri, s.s. XMTML og blogging. |
13:40 | Þjónustumiðuð högun upplýsingatæknikerfa, yfirlit og útfærsla, helstu vandamál og lausnir við þeim.
Notkun á þjónustumiðaðri högun (SOA) upplýsingatæknikerfa hefur aukist
mjög á síðustu misserum. Farið verður yfir uppbyggingu slíkra kerfa,
helstu staðla og lausnir við algengum vandamálum sem fylgja stærri SOA
kerfum. Til útskýringar verður notast við nýtt Rafrænt Þjónustulag DKM,
sem dæmi um kerfi byggt á SOA högun. Þorvarður Sveinsson verkfræðingur, Kögun - Glærur- |
14:20 | Dreifilyklavirkni - bætt aðgengi og aukið öryggi í vefþjónustum. - Glærur - Uppbygging á dreifilyklakerfi á Íslandi – Tilraunaverkefni sem byggja á nótkun rafrænna skilríkja verða kynnt og farið verður yfir grunnatriði dreifilyklavirkni Ragnar Torfi Jónasson sérfræðingur á upplýsingatæknisviði Landsbankans |
15:00 | Kaffihlé |
15:30 | Veikleikaprófanir Farið verður yfir helstu galla í .Net forritun fyrir vef og öryggisatriði fyrir vefþjónustur. Komið inn á helstu og gagnlegustu verkfæri til að nota í öryggisprófunum fyrir vef og staðla fyrir öryggisprófanir og mismunandi áherslu í öryggisprófunum. Ásgeir Ægisson hjá BitHex upplýsingaöryggi ehf |
16:10 | Rafræn viðskipti - Glærur - Samræmd notkun skeyta í viðskiptaferlum er nauðsynleg til þess að rafræn, pappírslaus viðskipti skili hagkvæmni. XML innleiðing í stað hefðbundins EDI hefur gengið hægt, sérstaklega þar sem ekki er til einn staðall um notkun þess í slíku umhverfi. Reynt verður að skýra hvernig UBL-NES verkefnið komi til með að breyta þessu. Tryggvi Þórðarson, Hugbúnaður hf. |
16:50 | Ráðstefnuslit |
Ráðstefnustjóri var Sigurjón Pétursson framkvæmdastjóri Landsteina Strengs
Í undirbúningsnefnd voru þær Bergþóra Karen Ketilsdóttir, Ebba Þóra Hvannberg og Hólmfríður Pálsdóttir
-
14. nóvember 2006