Tækni á bak við afþreyingu og fjölmiðlun
Ný tækni á bak við afþreyingu og fjölmiðlun: Tækifæri og ógnanir
18.október 2006 - frá 13:00-16:30 á Grand Hótel Reykjavík
Á ráðstefnu Ský miðvikudaginn 18. október 2006 á Grand
Hótel Reykjavík var fjallað um nýja tækni á bak við afþreyingu og fjölmiðlun.
Reynt var að svara m.a. þessum spurningum á ráðstefnunni.
Hverjar eru núverandi og framtíðar ógnanir við
tölvu- og dreifitæknina?
Hvað er IPTV og
hvernig nýtist það mér eða mínu fyrirtæki?
Hvað er að gerast í dreifitæknimálum í dag og hvert stefnum við?
Hver er stefna helstu
fjölmiðlavefja landsins?
Eigum við eftir
að sjá einhverjar aðrar nýjungar frá símafyrirtækjunum?
Hver er ávinningurinn með IP tækninni?
Munu
heimili landsmanna skarta IP tækninni í síma- og sjónvarpi?
Dagskrá:
12:50 Skráning ráðstefnugesta
13:05 Fundarstjóri setur ráðstefnuna
13:10 Eru síðustu metrarnir í lag? Nýttu þér frjálsa eftirlitskerfið! -glærur-
Rétt uppsetning og frágangur boðskiptalagna í húsum er
grundvallaratriði fyrir
öruggum fjarskiptum. Aukið framboð á flutningsleiðum
fjarskipta hefur gert
þessa
framkvæmd flóknari og gera kaupandanum erfiðara um val. Fyrirtæki og félög á
fjarskiptasviðið hafa stofnað til samstarfs hagsmunaðila um boðskiptalagnir,
sem hefur það að markmiði að auðvelda viðskipti notandans á þessu sviði og
tryggja rétt hans á góðri tæknilausn. Þetta fyrirkomulag er byggt upp samkvæmt evrópskri fyrirmynd
þar sem góð reynsla er komin á það.
Örlygur Jónatansson, rafmagnstæknifræðingur, sviðsstjóri hjá Rafiðnaðarskólanum
kynnti Samstarf hagsmunaaðila um boðskiptalagnir"Gervihnattatæknin -
Heimils og fyrirtækjamöguleikar. Ógnanir og tækifæri.
13:50 Nýjar samþættar vörur Símans
Þór Jes framkvæmdastóri
tæknisviðs Símans
14:20 Kaffihlé
14:40 Ljósleiðaravæðing heimila – lausn til framtíðar -glærur-
Fjallað var um þau tækifæri sem fylgja verkefni Orkuveitu
Reykjavíkur um ljósleiðaravæðingu til heimila. Sem er samstarfsverkefni
Reykjavíkurborgar og OR. Bent var á þau tækifæri sem fylgja þessu verkefni
hvað varðar þróun á nýrri þjónustu inn á Íslenskan markað sem nýtir sér IPTV
kerfi og 100 Mb/s samband inn á hvert heimili í Reykjavík.
Georg Aspelund
Þorkelsson, markaðsstjóri Gagnaveitu Orkuveitu Reykjavíkur
15:10 Notkun og þróun netmiðla í nýju umhverfi -Fyrri hl.glærur- Seinni hluti glærur -
Mikil aukning er orðin á notkun netmiðla sem frétta- og
upplýsingaveitna á
undanförnum misserum. Á sama tíma eru auglýsendur að
vakna til vitundar um að hér er nýr möguleiki á að nálgast viðskiptavini með
gagnvirkum hætti. Netmiðlar eru að ná til sín stærri hluta í auglýsingakökunni.
Netnotendur eru á sama tíma að verða sífellt virkari sem fréttaveitur og nota
ýmsa tækni til að koma skilaboðum sínum til annarra netverja. Hvaða áhrif hefur
það á hefðbundnari miðla? Sjónvarp og net eru að renna saman og það
endurspeglast á stærstu vefjunum í dag. Hvað ber framtíðin í skauti sér fyrir
vefmiðla? Hvar eru tækifærin og hvar eru ógnanir?
Ingvar Hjálmarsson netstjóri mbl.is
15:40 Spurningar og samantekt
15:55 Fundarstjóri slítur ráðstefnunni
Fundastjóri var: Hrafnkell V. Gíslason forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar
Í undirbúningsnefnd voru: Halldór Jón Garðarsson, Ragna María Sveinsdóttir
-
18. október 2006