Aðalfundur UT-kvenna - Faghóps UT-kvenna í UT
Aðalfundur UT-kvenna var haldinn miðvikudaginn 26. apríl kl. 17:00 í Háskólanum í Reykjavík
Dagskrá var samkvæmt samþykktum félagsins.
Kjósa þurfti í stjórn og formann stjórnar. Ásrún Matthíasdóttir gefur áfram kost á sér í sæti formanns og Hólmfríður Pálsdóttir og Auður Sigríður Kristinsdóttir gefa áfram kost á sér í stjórn félagsins. Úr stjórn ganga Birna Guðmundsdóttir, Laufey Ása Bjarnadóttir, Sólveig Hrönn Sigurðardóttir og Sigríður M. Björgvinsdóttir. Einnig vantar alltaf fleira fólk til starfa í vinnuhópa félagsins, skemmtihóp, fræðslu- og hvatningarhóp, tölfræðihóp og rithóp.
Að lokinni hefðbundinni dagskrá var boðið upp á veitingar og óvænt atriði.
Munið að hægt er að skrá sig í UT-konur á utkonur hjá sky.is og þar er einnig hægt að tilkynna framboð til stjórnar. Einnig er hægt að hafa beint samband við Ásrúnu í asrun hjá ru.is
-
26. apríl 2006