Mætti tölvukerfið þitt vera notendavænna?
Mætti tölvukerfið þitt vera notendavænna?
Utanfélagsmenn: 11.000 kr.
Aðilar utan vinnumarkaðar: 4.500 kr.
Kaffi/te og sætindi á eftir
Á fundinum ræðum við um hönnun viðmóts frá ýmsum sjónarhornum svo það styðji sem best við þarfir heilbrigðiskerfisins.
Er hinn almenni starfsmaður ánægður með tölvukerfin sem hann notar í daglegu starfi?
Hvað er hægt að gera til að bæta viðmót tölvukerfa í heilbrigðisþjónustu?
Dagskrá:
11:50 Húsið opnar
12:00 Fundur settur og hádegisverður borinn fram
12:15 Raunasaga notanda
Frá handskrifuðum nótum á blað og yfir í Sögukerfi, 14 ára reynsla með sífellt meiri löngun að snúa aftur til handskrifaðra nóta.
Sigurveig Margrét Stefánsdóttir, heimilislæknir á heilsugæslunni Höfða
12:25 Aðgengi fyrir sjónskerta aðila
Hjá Miðstöðinni hefur verið innleitt CRM kerfi sem ber heitið Viska og þar var unnið með að sjónskertir og blindir einstaklingar gætu unnið eins og aðrir starfsmenn í kerfinu. Bæði við skráningar og geta haft yfirsýn yfir sín mál.
Eyvindur Ívar Guðmundsson, ráðgjafi hjá SagaCRM
12:35 Endurhugsa viðmót og notagildi hugbúnaðar fyrir heilbrigðisstarfsfólk
Áskorunin að greina á milli þess sem notendur eru ánægðir með og þess sem notendur eru óánægðir með.
Þórólfur Ingi Þórsson, Origo
12:55 U. and I. design
Miklivægi hönnunarsamtals i kröfuhörðu umhverfi heilbrigðiskerfisins.
Arnar Ingi Viðarsson og Arnar Fells Gunnarsson, Gra. Hö., FÍT hönnunarstjórar á Arnar&Arnar hönnunarstofa og Kjartan Þórsson, MD og CEO hjá Nordverse Medical Solutions
13:15 Hönnun og þróun hugbúnaðar sem nota á í heilbrigðiskerfinu í samstarfi með heilbrigðisstarfsfólki og sjúklingum
Það að hanna og þróa kerfi til að nota í heilbrigðistilgangi er flókið en afar áhugavert ferli. Fyrirlestur þessi tekur á því hvernig er hægt að hanna og þróa notendamiðaðan hugbúnað í samstarfi með heilbrigðisstarfsfólki og sjúklingum.
Anna Sigríður Islind, Lektor í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík
13:35 „Ef ég bara fengi frið fyrir þessum notendum...“
Hugbúnaðarþróun getur verið yfirþyrmandi verkefni, sérstaklega þegar verið er að vinna með viðkvæm gögn sem geta haft bein áhrif á líf og líðan fólks. Farið verður yfir hvernig hægt er að minnka tímann sem fer í að slökkva elda þannig að hægt sé að einbeita sér að þróun.
Magga Dóra Ragnarsdóttir, stafrænn hönnunarleiðtogi, Mennsk ráðgjöf
13:55 Umræður
Vangaveltur og spurningar úr sal.
14:00 Fundarslit
Fundarstjóri: Daníel Karl Ásgeirsson, Landsspitali
-
20. október 2021