Heitustu tölvumálin framundan
Heitustu tölvumálin framundan
Utanfélagsmenn: 11.000 kr.
Félagar utan vinnumarkaðar: 5.000 kr.
Sætindi / kaffi /te á eftir
Vetrardagskrá Ský hefst með fróðlegum hádegisfundi um nokkur af heitustu tölvumálunum framundan svo sem hvernig vinnustaðir eru að þróast, hvað er að gerast í persónuverndargeiranum ásamt því að fara yfir öryggi stafrænna lausna. Að lokum heyrum við um notkun gervigreindar í heilbrigðisgeiranum.
Fundurinn er fyrir alla sem vinna við eða hafa áhuga á tæknigeiranum - og auðvitað alla sem vilja fræðast um hvað verður áberandi í tölvumálunum í vetur. Og svo er þetta einnig kjörið tækifæri til að heilsa uppá vini og kunningja í tengslaneti Ský.
Dagskrá:
11:50 Húsið opnar
12:05 Fundur settur og hádegisverður borinn fram
12:20 Völundarhús tækifæra
Í erindi sínu mun Herdís koma stuttlega inn á niðurstöður nýlegrar íslenskrar rannsóknar um þróun og breytingar á vinnumarkaði – munum við í framtíðinni öll geta unnið þar sem við viljum, þegar við viljum og með þeim sem við viljum?
Herdís Pála Pálsdóttir, Deloitte
12:40 Heitustu persónuverndamálin framundan
Það er alltaf nóg um að vera í persónuverndarheiminum, allt frá nýrri Evrópulöggjöf um gervigreind yfir í gerð leiðbeininga um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði, enda kemur persónuvernd við sögu nánast í öllum geirum samfélagsins. Í fyrirlestrinum ætlar Vigdís að stikla á stóru yfir það helsta sem er framundan á sviði persónuverndar í vetur.
Vigdís Eva Líndal, Persónuvernd
13:00 Notkun gervigreindar í COVID19 eftirliti
Landspítalinn hefur notað Heilsugátt til að hafa eftirlit með þúsundum sjúklinga með COVID19 smit. Gervigreind er notuð til að flokka og greina mikið magn gagna svo hægt sé að færa sjúklinga fljótt í hendur eftirlitsaðila og til að fækka innlögnum.
Karl Thoroddsen og Elías Sæbjörn Eyþórsson, Landspítalanum
13:20 Kökuskírteini: Rafræn umbylting og mikilvægi öryggis
Í fyrirlestrinum verður farið yfir þá tækni sem liggur að baki rafrænum ökuskírteinum, sérstaklega með tilliti til öryggis og fölsunar. Kynnt verða til sögunnar ný tegund skírteina, Kökuskírteini, sem fundagestum verður boðið að sækja.
Hjalti Magnússon, Syndis
13:50 Spurningar og umræður
14:00 Fundarslit
Fundarstjóri: Kristjana Björk Barðdal, stjórn Ský og þjónustu- og nýsköpunarsviði Reykjavíkurborgar
-
1. september 2021