SkyMWC
Hádegisfundur á Grand hóteli 6. mars kl. 12-14
“5G á Mobile World Congress, Barcelona”
Twitter: @SkyIceland #SkyMWC2019
Mobile World Congress er stærsta sýning í heiminum á sviði farneta, vissulega er margt annað í boði á sýningunni en fyrst og fremst er MWC farnetssýning. Saman koma helstu framleiðendur á sviði innviðabúnaðar, handtækja og handhafar höfundaréttar um allan heim til að sýna fjarskiptafyrirtækjum allt það nýjasta í heimi fjarskipta. Á sýninguna mæta síðan rúmlega 100.000 gestir. Í ár var hún haldin dagana 25 - 28. febrúar. Mikið af þeim orðum sem hafa ratað inní tungumálið undanfarin misseri fóru á flug á fyrri MWC sýningum. Það er því ljóst að MWC í Barcelona mótar framtíð fjarskipta bæði í náinni og fjarlægri framtíð.
Ský hefur vanalega fengið nokkra aðila sem fóru á sýninguna til að segja okkur frá því fyrir augu bar, en að þessu sinni höfum við fengið aðila frá Ericsson og Nokia, fyrirtæki sem leggja mikið af mörkum til sýningarinnar, til að koma og segja okkur frá því helsta.
Fundurinn er fyrir alla sem hafa áhuga á fjarskiptum og farnetstækni.
Dagskrá:
11:50-12:05 Afhending gagna
12:05-12:20 Fundur settur og hádegisverður borinn fram
12:20-12:55 Connecting industries, cities and consumers
Unleashing the full potential of 5G to address the needs of consumers, industry and cities. Creating new value, by moving beyond pure connectivity to services that deliver transformational benefits for society.
Jason Elliot, Head of 5G market Development, Nokia
12:55-13:30 Ericsson vision for 5G
The main difference with 5G compared with previous generations is that it is use-case driven. 5G is relevant for both consumers and industries and we estimate that there will be 1 Billion 5G subscription for the eMBB use case in 2023. 5G will reinforce people’s digital life. Along with more advanced devices and technologies like AR and VR, 5G will accelerate the development of new consumer experiences in new places. For service providers, 5G can be a game changer, providing new tools for service creation and revenue generation in new segments such as industries.
Hanna Maurer Sibley, Head of networks pre-sales Northern and Central Europe Ericsson
13:30-13:50 Pallborð með stuttri framsögu um 5G og MWC
Sæmundur E. Þorsteinsson, Lektor Háskóli Íslands og Guðmundur Hafsteinsson, Project lead Google Assistant, Google og formaður stýrihóps um nýsköpunarstefnu fyrir Ísland
14:00 Fundarslit
Fundarstjóri: Kjartan Briem, Sýn
Undirbúningsnefnd: Stjórn faghóps Ský um fjarskiptamál
Matseðill: Kryddhjúpað lamb með basil sósu, nýpukartöflumús og bökuðu rótargrænmeti. Sætindi / kaffi /te á eftir.
Þátttökugjald fyrir Ský félaga: 6.400 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélaga: 10.500 kr.
-
6. mars 2019