Vefir og appþróun
Hádegisfundur á Grand hóteli
22. mars kl. 12-14
"Þurfum við ekki líka að vera með app?"
Twitter: @SkyIceland #VefurApp
Þetta er spurning sem heyrist reglulega innan margra fyrirtækja og stofnana hér heima. Á þessum hádegisfundi ætlum við að taka fyrir öpp, hver er munurinn á “native”, “hybrid” og “web” öppum, notkun þeirra, efnistökum og virkni. Einnig að skoða hvenær fyrirtæki/stofnanir ættu frekar að einblína á að vera með snjallan vef í stað þessa að þróa app. Við fáum að kynnast öppum og heyra reynslusögu um leiðina að verðlaunaappi.
Þessi fundur er fyrir alla þá sem hafa spáð í hvort þeirra fyrirtæki/stofnun þurfi app og hvernig það nýtist sem best. Einnig er fundurinn ætlaður þeim sem hafa áhuga á að fræðast um það sem er að gerast í vefheiminum.
Dagskrá:
11:50-12:05 Afhending gagna
12:05-12:20 Fundur settur og hádegisverður borinn fram
12:20-12:40 Skítt með tæknina, hvað vill viðskiptavinurinn?
Ólafur Nielsen, Kolibri
12:40-13:00 Hvað þarf app?
Jón Andri Sigurðarson, Stokkur
13:00-13:20 Þarf Icelandair ekki líka að vera með app?
Guðmundur Guðnason, Icelandair
13:20-13:40 Leiðin að Kass - reynslusaga
Unnur Johnsen, Íslandsbanki
13:40-14:00 Pallborðsumræður
14:00 Fundarslit
Fundarstjóri: Ragnheiður Magnúsdóttir, Marel
Undirbúningsnefnd: Stjórn faghóps Ský um vefstjórnun
Matseðill: Rósmarin marineruð blálanga með kartöflubátum, gljáðu rótargrænmeti og sítrus smjörsósu. Sætindi / kaffi /te á eftir.
Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský: 5.900 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn: 9.700 kr.
Þátttökugjald fyrir aðila utan vinnumarkaðar: 4.000 kr.
-
22. mars 2017