FjarskiptaVor
Hádegisfundur á Hótel Hilton Nordica
5. apríl kl. 12-14
“Nýjungar og þróun fjarskipta vorið 2017”
Twitter: @SkyIceland #5G #FjarskiptaVor
Á vormánuðum 2017 hafa fulltrúar fjarskiptafélaganna sótt ráðstefnur heim þar sem helstu nýjungar úr fjarskiptaheiminum eru kynntar ár hvert. Fjarskiptafyrirtækin hafa hvert fyrir sig mismunandi sýn á það sem er spennandi og ber að innleiða í íslensku fjarskiptaumhverfi og verður spennandi að heyra fulltrúa þeirra segja frá nýungum úr heimi fjarskiptanna. 5G er sú tækni sem er í þróun og verður áhugavert að heyra í hverju er hún fólgin, hvað þarf að undirbúa fyrir slíka tækniþróun, ný tíðnisvið með tilheyrandi truflunum, hver er staðan í nágrannalöndum okkar, hver er sýn íslensku fjarskiptafélaganna á 5G vs. 4G, hvernig berst 5G þjónusta á nýju tíðnisviði inn að rúmi, niður í kjallara, inn í bíl, í skrifstofuturninum og svo mætti lengi telja. Við vonumst eftir svörum við sem flestum þessara spurninga og hlökkum til spennandi fyrirlestra sem ætlaðir eru öllum sem áhuga hafa á þróun fjarskiptatækninnar, leikmönnum, sérfræðingum og stjórnendum.
Dagskrá:
11:50-12:05 Afhending gagna
12:05-12:20 Fundur settur og hádegisverður borinn fram
12:20-12:40 MWC nýjungar
Arnar Bentsson, Vodafone
12:40-13:00 Fjarskipti - kraftur í nýþróun
Svanlaug Erla Einarsdóttir, Síminn
13:00-13:20 Dreifing þráðlausra fjarskipta innan rammgerðra mannvirkja
Óskar H. Valtýsson, Landsvirkjun
13:20-13:40 Wifi dreifing innandyra
Kristján Ólafur Eðvarðsson, Sensa
13:40-14:00 Undirbúningur fyrir 5G
Þorleifur Jónasson, Póst- og fjarskiptastofnun
14:00 Fundarslit
Fundarstjóri: Magnús Ragnarsson, Síminn
Undirbúningsnefnd: Stjórn faghóps Ský um fjarskipti
Matseðill: Hamborgari með salati, bacon og fleiru ásamt frönskum. Kaffi /te á eftir.
Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský: 5.900 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn: 9.700 kr.
Þátttökugjald fyrir aðila utan vinnumarkaðar: 4.000 kr.
-
5. apríl 2017