Öryggi upplýsingakerfa hins opinbera
Hádegisfundur á Grand hóteli
8. mars 2017 kl. 12-14
- athugið að hlaðborðið opnar kl. 11:30 -
"Hvaða ógnir steðja að öryggi upplýsingakerfa hins opinbera?"
eða „Allt sem þig hefur alltaf langað að vita um upplýsingaöryggisógnir en hefur aldrei þorað að spyrja um“
Twitter: @SkyIceland #OryggiHinsOpinbera
Margs konar ógnir steðja að upplýsingakerfum hins opinbera, rétt eins og fyrirtækja á markaði. Sjaldan er hins vegar fjallað um nákvæmlega hvernig jafnvel algengustu árásir á slík kerfi fara fram. Á þessum hádegisverðarfundi sem öryggishópur Ský stendur fyrir verður bætt úr því og teknar fyrir fjórar af algengustu ógnum við öryggi upplýsingakerfa hins opinbera. Útskýrt verður, á mannamáli, hvað felst í slíkum hættum, hvernig þær raungerast og hvað er hægt að gera til að verjast þeim.
Fundurinn er einkum ætlaður því starfsfólki hjá opinberum stofnunum og fyrirtækjum sem telja sig ekki hafa nægilega glögga mynd af því með hvaða hætti sé algengast að öryggi upplýsingakerfa á þeirra vinnustað sé raskað. Brýnt er að sá hópur kynni sér efnið og er þetta kjörið tækifæri til þess. Efni fundarins hefur hins vegar breiða skírskotun og er öllum velkomið að skrá sig til þátttöku.
Dagskrá:
11:30-12:05 Afhending gagna
11:30 - 12:20 Hádegishlaðborð fyrir framan fundarsalinn.
12:20-12:40 Gögnin tekin í gíslingu („Ransomware“)
Charlie Eriksen, Syndis
12:40-13:00 Notendur blekktir („Phishing“)
Kristján Valur Jónsson, Netöryggissveit Póst- og fjarskiptastofnunar
13:00-13:30 Fjöldaárásir launstolnu tölvanna („DDoS“)
Áki Hermann Barkarson, Advania
Guðbjörn Sverrir Hreinsson, Síminn
13:40-14:00 Ósköpum laumað inn í hugbúnað („SQL injection“)
Svavar Ingi Hermansson
14:00 Fundarslit
Fundarstjóri: Áslaug Eiríksdóttir, Gangverk
Undirbúningsnefnd: Stjórn öryggishóps Ský
Matseðill: Standandi hádegishlaðborð að hætti Grand. Mjög veglegt.
Bendum fólki á að hlaðborðið verður tilbúið frá kl. 11:30 fyrir þá sem vilja mæta tímanlega og njóta í góðra vina hópi.
Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský: 5.900 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn: 9.700 kr.
Þátttökugjald fyrir aðila utan vinnumarkaðar: 4.000 kr.
-
8. mars 2017