UT-dagurinn
Dagur upplýsingatækninnar 2013
Ráðstefna á Grand hóteli 28. nóvember kl. 13-17
Vöxtur í krafti netsins – Byggjum, tengjum, tökum þátt
Innleiðing stefnu um upplýsingasamfélagið 2013-2016 og bestu opinberu vefirnir 2013
Twitter: @SkyIceland #UTDAGUR
Að ráðstefnu UT-dagsins standa innanríkisráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga og Ský.
Á UT-deginum 2012 fór fram umræða og hugmyndavinna sem var liður í mótun nýrrar stefnu um upplýsingasamfélagið. Nú liggur stefnan fyrir og ber hún yfirskriftina: Vöxtur í krafti netsins – Byggjum, tengjum og tökum þátt. Stefnunni fylgir framkvæmdaáætlun þar sem tilgreind eru þau verkefni sem hrint verður í framkvæmd á næstu fjórum árum.
Á UT-deginum þann 28. nóvember 2013 verður fjallað um þau mikilvægu verkefni stefnunnar sem komin eru á framkvæmdastig.
Að auki verða kynntar niðurstöður úttektar á opinberum vefjum sem ber yfirskriftina: Hvað er spunnið í opinbera vefi 2013? Í lok dagskrár verða veittar viðurkenningar fyrir besta ríkisvefinn og besta sveitarfélagavefinn.
Dagskrá:
13:00-13:10 Setningarávarp
Halldór Halldórsson, formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
13:10-13:25 Þekkingaruppbygging:
Upplýsingatækni í menntun: Staða og stefna
Arnór Guðmundsson, skrifstofustjóri í mennta- og menningarmálaráðuneytinu
13:25-13:45 Opin og gegnsæ stjórnsýsla:
Opin gögn, tilraunaverkefni, stefnumótun, ein gátt
Elva Björk Sverrisdóttir, upplýsingafulltrúi, fjármála- og efnahagsráðuneytinu
Aukið aðgengi að landupplýsingum
Kjartan Ingvarsson, lögfræðingur í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu
13:45-14:05 Skipulag, öryggi og samvirkni:
Landsarkitektúr fyrir opinber kerfi
Hermann Ólason, verkefnisstjóri í innanríkisráðuneyti
Landsumgjörð um samvirkni í rafrænni þjónustu
Arnaldur Axfjörð, ráðgjafi hjá Admon
14:05-14:25 Hagræðing, skilvirkni og sjálfbærni:
Hagræðing með samtengingu kerfa dómstóla, ákæruvalds, lögreglu o.fl.
Hólmfríður S. Jónsdóttir, gæðastjóri í innanríkisráðuneytinu
Aukin skilvirkni og bætt bótanýting
Karl Björnsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga
Mótun upplýsingatæknistefnu
Hugrún Ösp Reynisdóttir, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu
Rafrænir reikingar
Bergþór Skúlason, sérfræðingur hjá Fjársýslu ríkisins
14:25-14:45 Kaffihlé
14:45-15:10 Lýðræði:
Sköpunargleði - Hvað er Þjóðskrá Íslands að sýsla?
Margrét Hauksdóttir, forstjóri Þjóðskrár Íslands
15:10-15:30 Þjónusta:
Aukinn aðgangur að sjúkraskrám -
Hver getur séð sjúkraskrána mína og hvað sé ég?
Ingi Steinar Ingason, verkefnisstjóri hjá Embætti Landlæknis
15:30-15:50 Hvað er spunnið í opinbera vefi 2013?
Niðurstöður úttektar á vefjum ríkis og sveitarfélaga kynntar
Jóhanna Símonardóttir, framkvæmdastjóri Sjá
15:50-16:00 Viðurkenningar veittar fyrir besta ríkisvefinn og besta sveitarfélagavefinn
16:00-17:00 Léttar veitingar
Dómnefnd fyrir val á bestu vefjunum 2013:
• Marta Lárusdóttir, Háskólanum í Reykjavík
• Rakel Pálsdóttir, Samtökum iðnaðarins
• Sigurjón Ólafsson, Fúnksjón vefráðgjöf
Fundarstjóri: Guðbjörg Sigurðardóttir, innanríkisráðuneyti
Undirbúningsnefnd: Anna Guðrún Björnsdóttir, Arnheiður Guðmundsdóttir, Björn Sigurðsson, Guðbjörg Sigurðardóttir, Hugrún Ösp Reynisdóttir og Ingi Steinar Ingason.
Meðan á ráðstefnunni stendur gefst fundarmönnum kostur á að fá sér rafræn skilríki í símann. Starfsmenn Auðkennis og Símans verða með aðstöðu á Grand Hótel á milli kl. 12:45 og 17. Þeir sem eru að sækja um rafræn skilríki þurfa að framvísa persónuskilríkjum, þ.e. ökuskírteini eða vegabréfi. Athugið að debetkort eru ekki tekin gild. Þeir sem eru nú þegar með virk rafræn skilríki geta afgreitt sig sjálfir á ra.audkenni.is eftir að þeir hafa fengið ný SIM kort
Verð fyrir félagsmenn Ský: 9.500 kr.
Verð fyrir utanfélagsmenn: 11.500 kr
Verð fyrir aðila utan vinnumarkaðar: 4.000 kr.
-
28. nóvember 2013