Niðurhal á Íslandi
Jólaráðstefna Ský verður haldin á Grand hóteli
miðvikudaginn 5. desember kl. 13 - 17
"Niðurhal á Íslandi"
Taktu þátt í umræðunni á Twitter: @SkyIceland #nidurhal
Fólk er í meira mæli en áður að ná sér kvikmyndir, tónlist og bækur á rafrænu formi, en er ólöglegt að hlaða niður efni? Hvers vegna og í hvaða tilfellum? Hvaða möguleikar eru í boði til að hlaða á löglegan hátt niður myndum, tónlist og bókum?
Þessum spurningum og fleirum verður svarað á jólaráðstefnunni. Ætlunin er að nálgast efnið út frá neytendum en ekki lagaumhverfinu og gera tilraun til að finna út úr því hvert niðurhal er að stefna hér á Íslandi. Gott tækifæri til að kynna sér efnið og enn möguleiki á að nýta löglegar leiðir til að gefa rafræna jólagjöf.
Ráðstefnan er opin öllum sem áhuga hafa á málefninu og gott tækifæri til að kasta jólakveðju á félaganna í tölvugeiranum.
Eftirtaldir fyrirlestrar verða á ráðstefnunni:
12:45 Húsið opnar - ráðstefnugögn afhent
13:00 Setning ráðstefnu
Jakob Frímann Magnússon
13:10 Stafræn(d) afþreying
Hvað er fólk að gera og hugsanlegar skýringar
Guðmundur Þór Reynisson
13:30 Af hverju þarf þetta að vera svona flókið?
Guðrún Björk Bjarnadóttir, STEF
13:50 Hvað er að frétta af iTunes?
Ólafur Sólimann, Epli.is
14:10 Staða og áskoranir við dreifingu rafræns námsefnis
Ingibjörg Ásgeirsdóttir, Námsgagnastofnun
14:30 Kaffihlé
14:50 Eru fjarskiptaleiðir til staðar?
Pálmi Sigurðsson, Vodafone
15:10 Sjónvarp, bíómyndir og fleira - ný leið að opnast?
Guðjón Már Guðjónsson, OZ
15:30 Emma.is Rafbækur fyrir alla
Óskar Þór Þráinsson, emma.is
15:50 Aðlögun að breyttu umhverfi
Björn Sigurðsson, Sena
16:10 Umræður
Ráðstefnustjóri: Jakob Frímann Magnússon
Undirbúningsnefnd: Ragnheiður H. Magnúsdóttir, Hugsmiðjan og Hjörtur Grétarsson, Reykjavíkurborg
Þátttökugjald fyrir félaga í Ský: 9.500 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn: 11:500 kr.
Þátttökugjald fyrir aðila utan vinnumarkaðar: 3.500 kr.
-
5. desember 2012