Samfélagsmiðlar
Á leiðinni heim...
Örkynningar um samfélagsmiðla
þriðjudaginn 27. nóvember kl. 16:30 -18:00
Engjateig 9, kjallara
Twitter: @SkyIceland #SamMidlar
Stuttar og hnitmiðaðar örkynningar og spjall um samfélagsmiðla (e. Social Media) á vegum faghóps Ský um vefstjórnun.
Hvernig ná fyrirtæki árangri með notkun samfélagsmiðla? Hver er tenging þeirra við hefðbundnar markaðsherferðir?
Á fundinum munu sérfræðingar fjalla um áhrif og notkun samfélagsmiðla frá ólíkum sjónarhornum.
Fyrirlestrar:
1) "Skapaðu samkeppnisforskot með sterkri heild samfélagsmiðla og vefsetra"
Jón Heiðar Þorsteinsson, Advania
2) "Að fá fólk til að tala"
Hugmyndir fyrir heimilið/ Good ideas for you Inga og Anna Lísa
3) "Þjónusta Vodafone í gegnum samfélagsmiðla"
Sigrún Ásta Einarsdóttir, sérfræðingur hjá Vodafone
Félagar í Ský fá frítt inn en utanfélagsmenn greiða 1.000 kr. (posi á staðnum).
-
27. nóvember 2012