SNOMED CT og rafræn læknabréf - Fókus
SNOMED CT og rafræn læknabréf
Fundur á vegum Fókus,
félags um upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu
Dagsetning: Fimmtudaginn 13. október 2011,kl 16:15 -17:30
Staður:Fundarsalur TM Software að Borgartúni 37, jarðhæð
Fundurinn er ókeypis og opinn öllum áhugasömum.
Sagt verður frá þróun og breytingum á sendingum rafrænna lækna- og hjúkrunarbréfa í gegnum Hekluna og hvað er framundan í þeim málum. Þá er það stórfréttin um að nú er SNOMED CT að koma til Íslands. Íslendingar hafa fengið landsleyfi fyrir kerfinu og það er, eins og önnur kóðunarkerfi í vörslu Embættis landlæknis. Rætt verður um þýðingu þess að fá SNOMED CT til Íslands og hvaða skref eru næst í því ferli.
Dagskrá:
16:15–16:30 Rafrænar sendingar læknabréfa milli stofnana með Heklu
Guðjón Vilhjálmsson, hugbúnaðarverkfræðingur hjá EMR
16:30–17:15 Ísland í SNOMED CT
Hver er ávinningur og næstu skref?
Lilja Sigrún Jónsdóttir, læknir á heilbrigðisupplýsingasviði Embættis landlæknis
Ásta St. Thoroddsen, dósent við hjúkrunarfræðideild HÍ
Arna Harðardóttir, verkefnastjóri á Landspítalanum
17:15–17:30 Umræður og spurningar
17:30 Fundi slitið
Fundarstjóri:Valgerður Gunnarsdóttir formaður Fókus
-
13. október 2011