Ný fjarskiptaáætlun
Ný fjarskiptaáætlun stjórnvalda fyrir árin 2011 - 2022
Hádegisverðarfundur á Grand hótel Reykjavík
2. nóvember kl. 12 - 14
Á fundinum verður ný fjarskiptaáætlun kynnt. Rætt verður um framtíðarsýn stjórnvalda til næstu tólf ára en á haustþingi 2011 verður lögð fram þingsályktunartillaga um 12 ára fjarskiptaáætlun, jafnframt aðgerðarætlunar til næstu fjögurra ára.
Allt áhugafólk um fjarskipti er hvatt til að mæta og kynna sér stefnumörkun stjórnvalda auk þess sem hér gefst tækifæri til að spyrja spurninga og leggja orð í belg um framtíðaskipan fjarskiptamála á Íslandi.
Dagskrá:
11:50-12:05 Afhending gagna
12:05-12:20 Fundur settur og hádegisverður borinn fram
12:20-12:30 Ávarp Innanríkisráðherra, Ögmundar Jónassonar
12:30-12:50 Kynning á áætluninni
Sigurbergur Björnsson, skrifstofustjóri í Innanríkisráðuneytinu
12:50-13:05 Öryggismál og mikilvægi fjarskiptainnviða
Þorleifur Jónasson, forstöðumaður tæknideildar hjá Póst- og fjarskiptast0fnun
Stefán Snorri Stefánsson, hópstjóri CERT-ÍS hjá Póst- og fjarskiptastofnun
13:05-13:25 Snertifletir fjarskiptaáætlunar við upplýsingasamfélagið
Guðbjörg Sigurðardóttir, skrifstofustjóri í Forsætisráðuneytinu
13:25-13:55 Umræður
13:55-14:00 Samantekt
Gunnar Svavarsson, formaður Fjarskiptasjóðs
Fundarstjóri: Steinunn Valdís Óskarsdóttir, sérfræðingur í Innanríkisráðuneyti
Undirbúningsnefnd: Faghópur Ský um fjarskipti og Innanríkisráðuneytið
Matseðill: Fiskitvenna með grænmetisrisotto og hvítvínssósu. Kaffi og konfekt á eftir.
Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský: 4.900 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn: 7.900 kr.
Þátttökugjald fyrir aðila utan vinnumarkaðar: 3.000 kr.
-
2. nóvember 2011