Staða Íslands í nýtingu UT
Hádegisfundur á Grand hótel 7. september kl. 12-14
"Staða Íslands í nýtingu UT og tækifæri til betrumbóta"
Þann 7.september verða birtar niðurstöður könnunar Alþjóðaefnahagsráðsins um samkeppnishæfni þjóða, Global Competitiveness Report, en hún er virtur mælikvarði á efnahagslíf um 130 þjóða víða um heim.
Á fundinum verður rýnt í niðurstöður þessarar könnunar ásamt öðrum evrópskum könnunum og þá með áherslu á aðgengi og nýtingu upplýsingatækni. Í framhaldi verður sett upp pallborð þar sem rætt verður um hvaða tækifæri felast í þessum upplýsingum.
Nánari upplýsingar um könnunina sjálfa má finna á vef Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
Dagskrá:
11:50-12:05 Afhending gagna
12:05-12:20 Fundur settur og hádegisverður borinn fram
12:20-12:40 Staða Íslands í samanburði við aðrar þjóðir - Samkeppnishæfni þjóða
Karl Friðriksson, Nýsköpunarmiðstöð Íslands
12:40-13:00 Hvernig er mælt
Hjálmar Gíslason, Datamarket
13:00-13:20 Tæknilegir innviðir
Sæmundur E. Þorsteinsson, Míla
13:20-13:50 Pallborð – Tækifæri og framtíð
Karl Friðriksson, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Hjálmar Gíslason, Datamarket,
Katrín Dóra Þorsteinsdóttir, SI, Halla Björg Baldursdóttir, Þjóðskrá Íslands og
Sæmundur E. Þorsteinsson, Míla
13:50-14:00 Stofnun vinnuhóps um eftirfylgni á greiningu talna í UT
Fundarstjóri: Eiríkur Hjálmarsson, Orkuveita Reykjavíkur
Matseðill: Indverskir sjávarréttir , tandoori með hrísgrjónum, salati og naan brauði.
Konfekt / kaffi /te
Undirbúningsnefnd: Sigrún Gunnarsdóttir frá Maritech, Hjörtur Grétarsson frá Reykjavíkurborg, Eggert Ólafsson frá Reykjavíkurborg og Karl Friðriksson frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský 4.900 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn 7.900 kr.
Þátttökugjald fyrir aðila utan vinnumarkaðar 3.000 kr.
-
7. september 2011