IP símkerfi
Hádegisverðarfundur: IP símkerfi – upplifun og öryggi
Hvenær: 12. jan. kl. 12 - 14
Hvar: Grand hóteli, Gullteigur
Á þessum spennandi hádegisverðarfundi verður skyggnst inn í heim IP símkerfa.
Sérfræðingar frá Sensa og Deloitte ræða öryggismál tengd hefðbundnum IP símkerfum sem og Open Source framboði í þessum flokki. Einnig mun yfirmaður tæknirekstrar hjá LSH lýsa upplifun sinni af uppsetningu og rekstri eins af stærri IP símkerfum á landinu.
Dagskrá:
11:50 - 12:00 Húsið opnar og ráðstefnugögn afhent
12:00 - 12:20 Fundur settur, hádegisverður borinn fram
12:20 - 12:50 Öryggi og framtíðin. Hvað eru símkerfi í dag?
Andri Örvar Baldvinsson, Sensa
12:50 - 13:20 Open source símkerfi og öryggismál. Fer þetta saman?
Tryggvi Jónsson, Deloitte
13:20 - 13:50 IP símkerfi LSH fyrr og nú
Friðþjófur Bergmann, LSH
13:50 - 14:00 Umræður
Fundarstjóri: Davíð Stefán Guðmundsson hjá Símanum
Undirbúningur: Faghópur Ský um fjarskiptamál
Matseðill: Innbakaðir sjávarréttir með kryddgrjónum / grænmeti - ferskt salat og humarsósa. Kaffi og konfekt á eftir.
Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský 4.900 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn 7.900 kr.
Þátttökugjald fyrir aðila utan vinnumarkaðar 3.000 kr.
-
12. janúar 2011