Netríkið Ísland: Sjálfshjálp um vefi og opinn hugbúnað
Netríkið Ísland:
Sjálfshjálp um vefi og opinn hugbúnað
Hádegisverðarfundur á Grand hótel 2. apríl kl. 12- 14
Skýrslutæknifélag Íslands og forsætisráðuneytið standa fyrir
hádegisverðarfundi þar sem verður kynnt nýtt fræðsluefni á UT-vefnum.
Annars vegar handbók um opinbera vefi og hins vegar fræðsluefni um
stafrænt frelsi.
Auk kynningar á fræðsluefni verða sagðar nokkrar reynslusögur af uppbyggingu opinberra vefja og notkun frjáls og opins hugbúnaðar hjá stofnunum.
Fundurinn er liður í því að efla fræðslu til þeirra sem fást við upplýsingatækni hjá opinberum aðilum, ríkisstofnunum og sveitarfélögum.
Dagskrá
11:55 | Skráning fundargesta |
12:10 | Setning fundarins og hádegisverður borinn fram |
12:25 | "Netríkið Ísland - sjálfshjálp um vefi og opinn hugbúnað“ Halla Björg Baldursdóttir frá forsætisráðuneyti, sjá glærur |
12:35 | "Handbók um opinbera vefi" Arnar Pálsson ráðgjafi hjá ParX, sjá glærur |
12:50 | "Fræðsluefni um stafrænt frelsi" Tryggvi Björgvinsson formaður félags um stafrænt frelsi á Íslandi, sjá glærur |
13:05 | "Að innleiða stóran vef" Gunnar Grímsson verkefnisstjóri vefdeildar Háskóla Íslands, sjá glærur |
13:15 | "Helsta áskorun fyrir vef lítils sveitarfélags" Róbert Ragnarsson bæjarstjóri í Vogum, sjá glærur |
13:25 | "Prófun á OpenOffice.org“ Jens Þór Svansson hjá Ríkisskattstjóra, sjá glærur |
13:35 | "Reynsla af notkun opins hugbúnaðar“ Adam Óskarsson kerfisstjóri við Verkmenntaskólann á Akureyri, sjá glærur |
13:45 | Samantekt fundarstjóra og umræður |
14:00 | Hádegisverðarfundi slitið |
Fundarstjóri: Guðfinna B. Kristjánsdóttir, upplýsingastjóri hjá Garðabæ
Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský er 3.900 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn er 4.900 kr.
Þáttökugjald fyrir nemendur við framvísun námsskírteinis kr. 2.500
Skráðu þig hér eða hringdu í síma 553 2460
-
2. apríl 2009