Rafrænar kosningar
Rafrænar kosningar -
Verkfæri fyrir beint lýðræði
Hádegisverðarfundur á Grand Hótel föstudaginn 20. mars 2009 kl. 12 - 14
Getur almenningur tekið beinan þátt í störfum Alþingis og sveitarstjórnum?
Skýrslutæknifélag Íslands stendur fyrir hádegisverðarfundi um rafrænar kosningar og beint lýðræði, sem sífellt fleiri stjórnmálamenn og aðrir áhugamenn um pólitík gera að sínu máli. Á fundinum verða skoðaðir möguleikar á rafrænum kosningum og verður leitast við að fá svör við eftirfarandi spurningum.
- Eru öruggar rafrænar kosningar tæknilega mögulegar?
- Hvaða leiðir koma til greina við innleiðingu beins lýðræðis?
- Er flokkakerfið einfaldlega betra en beint lýðræði?
- Geta allir tekið þátt í beinu lýðræði?
Dagsskrá:
11:55 | Skráning fundargesta |
12:10 | Setning fundarins og hádegisverður borinn fram |
12:25 | "Núverandi flokkakerfi" Kristrún Heimisdóttir, lögfræðingur, sjá glærur |
12:40 | "Múgsprottin löggjöf" Smári McCarthy, sjá glærur |
12:55 | "Traust rafræn skilríki og reynsla annarra þjóða" Sigurður Másson frá Skýrr, sjá glærur |
13:10 | "Beint lýðræði í núverandi kerfi og framtíðarsýn" Daði Ingólfsson, sjá glærur |
13:25 | "Beint lýðræði á allra valdi" Gunnar Grímsson ráðgjafi, sjá glærur |
13:40 | Samantekt fundarstjóra og pallborðsumræður |
14:00 | Hádegisverði slitið |
Fundarstjóri: Þórólfur Árnason forstjóri Skýrr
Undirbúningsnefnd skipa: Daði Ingólfsson, Magnús Hafliðason og Valgarður Guðjónsson
Pallborð skipa: Daði Ingólfsson, Geir Ragnarsson frá Samgönguráðuneytinu, Guðbjörg Sigurðardóttir, skrifstofustjóri hjá Forsætisráðuneytinu og Valgarður Guðjónsson frá Staka.
Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský er 3.900 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn er 4.900 kr.
Þáttökugjald fyrir nemendur við framvísun námsskírteinis kr. 2.500
-
20. mars 2009