Skip to main content

Efni fyrir öll (Inclusive Content Design)

Allir sem hanna efni fyrir hinn víða veraldarvef vilja að upplifun notenda verði sem best óháð þörfum, getu eða bakgrunni. Efnið og heildar framsetning þess þarf að vera með réttum upplýsingum, hnitmiðað og aðgengilegt á sama tíma og tekið er tillit til ólíkra þarfa ólíkra notenda.
Efnishönnun á vef sem er aðgengilegur öllum, nýtist öllum og skapar jöfn tækifæri verður æ flóknari þegar kröfur um hnitmiðaðan og skýran texta „beint að efninu“ verða háværari.
Það getur verið viðkvæmt og flókið mál að hanna aðgengilegt og innihaldsríkt efni. Hvernig er best að nálgast ólíka hópa?
Nær efnið sem við höfum mikið fyrir að koma á vefinn til allra sem við viljum, þurfum og eigum að ná til?
Efni fundarins gagnast öllum sem koma að efnishönnun af einhverju tagi. Farið verður yfir mikilvægi efnisstefnu og raddir ólíkra notenda fá að heyrast.

Dagskrá:

12:00   Hádegisverður (fyrir framan Kaldalón) og tengslanetið styrkt

Ingunn Fjóla Brynjólfsdóttir
12:20   Efnisstefna, nauðsyn eða skúffufóður
Mikilvægi efnisstefnu fyrir vefi hagnýting hennar.
LinkedIn logo  Ingunn Fjóla Brynjólfsdóttir, efnishönnuður hjá Stefnu Hugbúnaðarhús
Guðrún Björg Sigurbjörnsdóttir
12:40   Þróun efnis á lífsviðburðinn Að eldast
Lífsviðburðurinn Að eldast á island.is er hluti af aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk 2023-2027, sem nefnist Gott að eldast. Erindið fjallar um vinnslu efnis, rýni með mismunandi hópum og samvinnu við ýmsa aðila þvert á samfélagið.
LinkedIn logo  Guðrún Björg Sigurbjörnsdóttir, sérfræðingur Gott að eldast félags- og vinnumarkaðsráðuneytið
Þorbjörg Þorvaldsdóttir
13:00   Kynhlutlaust mál - Hvað er það?
Fjallað er um ólíkar birtingarmyndir kynhlutlauss máls og sagt frá hinsegin nýjungum í máli.
LinkedIn logo  Þorbjörg Þorvaldsdóttir, verkefnastjóri hjá Samtökunum 78
IngaBjorkMargretarBjarnadottir
13:20   Bætt aðgengi í stafrænum heimi
LinkedIn logo  Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir
Eiður Welding
13:40   Stjórnsýslan og ungt fólk - hvernig náum við til þeirra?
Fjallað um aðgengilega stjórnýslu ríkis og bæja í víðu samhengi.
LinkedIn logo  Eiður Welding, formaður UngÖbí og stjórnarformaður ÖBÍ

14:00   Fundarslit

Björn Sigurðsson
Fundarstjóri:
LinkedIn logo  Björn Sigurðsson, Umbra - þjónustumiðstöð Stjórnaráðsins




  • Félagsmenn Ský:     8.300 kr.
    Utanfélagsmenn:   14.900 kr.
    Félagar utan vinnumarkaðar: 6.000 kr.
  • Hlaðborð
    Sítrónu marineraður kjúklingur. Oumph grýta með blönduðum baunum. Grænt salat. Kartöflusalat með sýrðum lauki og ferskum jurtum. Nýbakað súrdeigsbrauð. Þeytt smjör og rauðrófu hummus.