Skip to main content

Stofnfundur faghóps um gervigreind

Í september 2024 verður stofnfundur faghóps Ský um gervigreind. Með stofnun þessa faghóps vilja stofnendur leggja áherslu á gervigreind og nýtingu hennar í daglegu starfi. Við hvetjum fólk innan og utan geirans, reynslubolta og þau sem eru áhugasöm eða jafnvel bara forvitin um gervigreind að mæta.

Fundurinn er opinn öllum sem vilja kynna sér hópinn. Skráðir félagar í Ský geta gengið í faghópinn á staðnum eða eftir fundinn.

Dagskrá í vinnslu!

Undirbúningur
Lárus Hjartarson, Peritus,
Annika Simonsem, HÍ
Bjarni Þór Gíslason, Gagnagúrú
Grímur Sæmundsson, Crayon
Kristinn Þórisson, HR


 

Tillaga að reglum faghóps Ský um gervigreind

1. gr.
Faghópur Ský um gerivgreind er faghópur innan félagsins og starfar eftir reglum þess um faghópa.

2. gr.
Áhersla hópsins er á gervigreind og nýtingu hennar í daglegu starfi.

Markmið faghópsins eru í samræmi við markmið móðurfélagsins og felast m.a. í: 

  • Að skapa vettvang fyrir faglega umræðu um gervigreind
  • Að hvetja til samstarfs og þekkingarmiðlunar milli fyrirtækja og einstaklinga
  • Að efla tengslamyndun jafnt innan geirans sem og utan fyrir hann
  • Að stuðla að aukinni fræðslu og fagmennsku í öllu sem tengist gervigreind
  • Að stuðla að vandaðri málnotkun og notkun íslensku innan gervigreindar