Þróun fjarvinna í stafrænum heimi
Mikil þróun hefur orðið í tækni og er sífellt að koma nýjar upplýsingar varðandi tækni. Þegar COVID19 skall á þurftu flest fyrirtæki að bregðast við og galdra fram nýja lausn þegar kom að því að starfsfólk þurfti að vinnu að heiman. Það hefur aftur á móti sýnt sig að starfsfólk vill halda í það, þótt það væri bara hluta af vikunni. Hér að neðan ætla ég að koma með nokkra punkta um fjarvinnu og þau áhrif sem hún getur valdið.
Mismunandi val á vinnuviku
Fólk er auðvitað mismunandi og hver og einn er með sína eigin hugmynd um hvað sé hin fullkomna vinnuvika. Fyrirtæki á Íslandi hafa tekið mis vel í þessa þróun. Sum fyrirtæki bjóða upp á frjálst val þegar að kemur að fjarvinnu en önnur bjóða upp á fjölda daga sem eru í boði til að vinna að heiman. Sum fyrirtæki bjóða ekki upp á neina fjarvinnu og svo eru önnur fyrirtæki sem eru ekki með höfuðstöðvar og því bara fjarvinna í boði. Ég tel að á næstu árum verður það krafa starfsmanna að fá að hafa frjálst val til þess að vinna að heiman. Fyrir marga er gott að geta unnið að heiman en fyrir aðra vilja þeir félagslega þáttinn við að mæta niður í vinnu.
Fjárhagslegir kostir og gallar fjarvinnu fyrir fyrirtækin
Til þess að bjóða upp á fjarvinnu þurfa aftur á móti fyrirtæki að bjóða allskonar búnað til þess að hægt sé að vinna að heima. Sem dæmi um þetta er t.d. tölvuskjár, lyklaborð, net og margt annað. Annað sem aftur á móti minnkar kostnað fyrir fyrirtæki þegar þau bjóða upp á fjarvinnu er skrifstofupláss. Þegar fólk er tilbúið að vinna heima, þótt það sé bara að hluta til, þá getur fyrirtækið boðið upp á “hótelborð”, þar sem starfsmenn geta pantað borðið fyrir daginn, eða haft “fyrstur kemur fyrstu fær borð”. Þetta veldur því að fyrirtæki geta stækkað án þess að þurfa stærri skrifstofurými fyrir starfsfólkið sitt. Fjarvinna getur einnig boðið upp á það að fólk vinni í öðru landi heldur en fyrirtækið er. Þetta einfaldar fyrirtækjum að finna fólk sem er með sérþekkinguna sem þarf eða ef fyrirtækið vill fá meiri fjölbreytileika í starfsmanna hópinn sinn. Þetta er einnig gott ef fólk þarf að flytja tímabundið erlendis. Fyrirtækið þarf þá ekki að finna nýjan starfsmann og missa þá þekkingu sem starfsmaðurinn býr yfir.
Jákvæð áhrif á landsbyggðina
Þetta getur einnig haft jákvæð áhrif á landsbyggðina þar sem fólk getur unnið hjá því fyrirtæki sem það vill en samt búið út á landi. Oft vill fólk ekki flytja út á land þar sem það er ekkert fyrirtæki til staðar sem heillar þau en með aukinni þróun tel ég að þetta breytist. Þetta getur verið gott fyrir fólk sem hefur ekki tök á því að kaupa sér fasteign á höfuðborgarsvæðinu þar sem fasteignir eru ódýrari út á landi.
Stress og burnout
Undanfarin ár hefur verið aukin umræða varðandi kulnun í starfi. Fólk í dag er meira stressað heldur en það var áður fyrr. Fólk vinnur átta tíma vinnudaga og þarf að halda uppi heimili en fólk er að stressa sig að ná að klára allt sem klára þarf. Ég tel að með aukinni fjarvinnu getur fólk minnkað stress. Ef fólk fer ekki í vinnuna á háannartíma og þarf því sitja í umferð eina til tvær klukkustundir á sólarhring þá getur það nýtt tímann sinn í annað. Auðvitað er margt annað og mikilvægari þættir sem koma að lausn við kulnun en ég tel að þetta hafi að minnsta kosti einhver jákvæð áhrif á líf fólks.
Það er spennandi að sjá hvernig framtíðin er þegar kemur að fjarvinnu og hvort miklar breytingar verða á þróun þegar kemur að fjarvinnu.
Höfundur: Oddný Ýr Magnúsdóttir
Heimildir:
https://www.ruv.is/frett/2021/02/05/covid-fjarvinna-og-buferlaflutningar
https://theconversation.com/even-google-agrees-theres-no-going-back-to-the-old-office-life-177808
Skil á efni
Leita í vefútgáfu Tölvumála
Um Tölvumál
Tölvumál - tímarit Skýrslutæknifélags Íslands er óháð tímarit um tölvutækni og hefur verið gefið út frá árinu 1976.
Vefútgáfa Tölvumála birtir vikulega nýja grein á vef Ský og árlega er gefið út veglegt prentað tímarit undir nafninu "Tölvumál" þar sem fjallað er um tölvutækni frá ýmsum sjónarhornum og er þema blaðsins jafnan valið snemma árs og útgáfa að hausti.
Ritnefnd Ský sér um að afla efni í Tölvumál og geta allir sem áhuga hafa sent inn efni.