Orðasöfn fyrir rafrænar sjúkraskrár
Orðasöfn og samvirkni tölvukerfa fyrir heilbrigðisgögn
Fókus fundur í Eirbergi fimmtudaginn 11. október
kl. 12:00-13:00
Fundurinn er öllum opinn
Fókus, faghópur um upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu, stendur fyrir fundi um orðasöfn fyrir rafrænar sjúkraskrár, notkun þeirra og innleiðingu í tölvukerfi.
Fyrirlesari verður Theo Bosma aðstoðarforstjóri Health Language
fyrirtækisins í Bandaríkjunum sem sérhæfir sig í innleiðingu og
tengingu orðasafna og kóðunarkerfa í klínísk skráningarkerfi til að auka samvirkni þeirra - sjá
nánar á www.healthlanguage.com.
Í fyrirlestrinum mun hann fjalla m.a. um samþættingu og samvirkni orðasafna og klínískra
skráningarkerfa og SNOMED kerfið.
Fundurinn er öllum opinn og verður haldinn í stofu 101 í Eirbergi (gamla hjúkrunarskólanum á Landspítalalóðinni).
Fyrir hönd stjórnar Fókus
Valgerður Gunnarsdóttir formaður
-
11. október 2007