DEIB Vinnustofa
Forritun og rökhugsun hefur verið skilgreind sem grundvallarþekking á 21 öldinni, ekki aðeins fyrir tölvunarfræðinga heldur fyrir okkur öll. Þessi staðreynd kallar á fjölbreyttari og stærri nemendafjölda í tækninám til þess að geta haldið í við kröfur vinnumarkaðarins. Markhópur vinnustofunar eru þau sem hafa áhuga á hvernig við getum eflt inngildingu á vinnumarkaði. DEIB (Diversity, Equity, Inclusion and Belonging) er umfjöllunarefnið og markmiðið með vinnustofunni er að setja saman einföld skref sem fyrirtæki dagsins í dag ættu að geta stigið til þess að auka vellíðan á vinnustaðnum fyrir öll.
Það er frítt inn en allir verða að skrá sig á viðburðinn.
-- ENGLISH --
If you are interested in exploring it with us, we recommend on signing up for the workshop on how we can strengthen inclusion in the labor market (DEIB).
Dagskrá:
12:30 Húsið opnar
13:00 Fundur settur og kynning á verkefni dagsins
14:00 Vinnustofa
15:30 Samantekt
16:00 Fundarslit
Stjórnendur vinnustofu:
Undirbúningsnefnd: Stjórn faghóps Ský um menntun, fræðslu og fræðistörf í UT í samstarfi við Vertonet og WomenTechIceland
-
22. maí 2024
-
kl. 13:00 - 16:00
-
Engjateigur 9, 105 ReykjavíkSalur í kjallara (Verkfræðingahúsið)
-
Frítt