Hugbúnaðarráðstefnan
Á hugbúnaðarráðstefnu Ský í ár fáum við að hlýða á ýmsa áhugaverða fyrirlestra, allt frá skipulagi og áætlanagerð yfir í infrastrúktur hugbúnaðar sem þjónusta (e. SaaS) og atburðadrifin arkitektúr (e. event driven).
Ráðstefnan er fyrir alla sem hafa áhuga á hugbúnaðargerð, hvort sem þeir eru hönnuðir, forritarar, stjórnendur eða kerfisstjórar. Stjórn faghóps Ský um hugbúnaðargerð ber veg og vanda að undirbúningi ráðstefnunnar.
Dagskrá:
11:50 Húsið opnar
12:00 Fundur settur og hádegisverður borinn fram
12:20 Saga hugbúnaðarhögunar hjá Sidekick Health
Farið yfir hvernig hugbúnaðarhögun hjá Sidekick Health hefur þróast í gegnum tíðina og hvaða áskoranir og ákvarðanir hafa stuðlað að núverandi stöðu mála.
Þórir Gunnarsson, Sidekick Health
12:40 Arkitektúr hjá Controlant
Að hugsa stórt: Arkitektúr Controlant í gegnum árin, veldisvöxtur á tímum covid og horft til framtíðar.
Elvar Steinn Kjartansson, Controlant
13:00 From 3-tier to cloud native architecture
Síðustu ár hefur Meniga uppfært hugbúnaðar-arkitekúr lausna sinna í átt að „cloud native“ og „event-driven“ arkitektúr, ásamt því að byggja upp „SaaS infrastructure“ fyrir banka. Þessi fyrirlestur fjallar um þá vegferð.
Ásgeir Örn Ásgeirsson, Meniga
13:20 Resilient Product Roadmap
Þar verður farið yfir hvernig vinna eins og personas, viðskiptaáætlanir, markmið og fleira tengist inn í vegvísi vörunnar á gagnlegan hátt.
Kristín Hrefna Halldórsdóttir, Origo
13:40 Umræður
14:00 Fundarslit
Fundarstjóri: Perla Þrastardóttir, Reykjavíkurborg
-
30. nóvember 2022
-
kl. 12:00 - 14:00
-
Hótel Reykjavík Grand
Sigtúni 38, 105 ReykjavíkAðkoma Sigtúnsmegin
-
Félagsmenn Ský: 7.500 kr.
Utanfélagsmenn: 13.500 kr.
Félagar utan vinnumarkaðar: 5.500 kr. -
Trönuberjafyllt kalkúnabringa, sætar kartöflur, bakað rótargrænmeti og kryddjurtasósaVegan: Grænmetis wellingtonKaffi/te og sætindi á eftir