Heitustu tölvumálin framundan
Á viðburðinum verður fjallað um hver heitustu tölvumálin eru framundan. Fyrirlesarar munu velta upp hvað við munum sjá í tæknigeiranum næstu ár, hvernig mannauðurinn þarf að þróast samhliða þeim framsæknu lausnum sem fyrirtæki eru að innleiða í hinum fjölmörgu geirum
Fundurinn er fyrir alla sem vinna við eða hafa áhuga tæknigeiranum - og auðvitað alla sem vilja fræðast um hvað verður áberandi í tölvumálunum í vetur. Og svo er þetta einnig kjörið tækifæri til að heilsa uppá vini og kunningja í tengslaneti Ský.
Dagskrá:
11:50 Húsið opnar
12:00 Fundur settur og hádegisverður borinn fram
12:20 Er 5. iðnbyltingin að hefjast?
4. iðnbyltingin er á fleygiferð, en er 5. iðnbyltingin að skella á okkur líka? Hvað einkennir 5. iðnbyltinguna og hvað mun hún kallast?
Snæbjörn Ingi Ingólfsson, Itera
12:40 Stafræn vegferð Marel
Erum við að umbreyta matvælaframleiðslu með nýjum skýjalausnum?
Aðalheiður Guðjónsdóttir, Marel
13:00 Vangaveltur um tækniframfarir næstu áratuga
Almennar vangaveltur um tækniframfarir og lífið á næstu áratugum. Látum hugan reika um líklegar þróanir og mögulegar nýjungar sem gætu umbreytt heiminum.
Stefán Gunnlaugur Jónsson, Háskólinn í Reykjavík
13:20 Er tölvugeirinn nógu fjölbreyttur?
Rýnt í tölfræði og kynnt til sögunnar alþjóðlegt tól sem tækifæri fyrir fyrirtæki, stofnanir, skóla og fleiri til að skuldbinda sig og styðja við aukinn hlut kvenna og ungs fólks í tæknistörfum.
Arnheiður Guðmundsdóttir, Ský
13:30 Pallborðsumræður
Vörpum upp og ræðum hvaða tölvumál verða í brennidepli á næstunni. Förum yfir hvernig tæknigeirinn hefur verið síðustu 10 ár og spekúlerum svo hvernig hann mun þróast. Hvaða trend munum við sjá á næstu árum, hvernig munu mannauðsmál þróast, hvernig tekist verður á við hinar margslungnu áskoranir sem við stöndum fyrir á borð við loftslagsvánna, sveigjanlegri vinnutíma, fólksfjölgun og ákall um fjölbreyttari mannauð.
Sverrir Norland, rithöfundur, fjölmiðlamaður og fyrirlesari
María Dís Gunnarsdóttir, OK
Finnur Pálmi Magnússon, Gangverk
Pallborðsstjóri: Kristjana Björk Barðdal, Reykjavíkurborg
14:00 Fundarslit
Fundarstjóri: Jón Ingi Sveinbjörnsson, DMM lausnir
-
28. september 2022
-
kl. 12:00 - 14:00
-
Félagsmenn Ský: 7.500 kr.
Utanfélagsmenn: 13.500 kr.
Félagar utan vinnumarkaðar: 5.500 kr. -
Bláberjalegið lambalæri, blandað grænmeti, kartöflubátar og rósmarín
Kaffi/te og sætindi á eftir