Fjármál fyrirtækja í stafrænum heimi
UPPSELT!
Nú þegar stafrænar lausnir eru á hverju strái fyrir hinn almenna notanda er ekki úr vegi að athuga hvaða stafrænu þjónustur og búnaður eru í boði fyrir fyrirtæki sem leita lausna til hagræðingar.
Fundurinn er fyrir alla þá sem vinna við fyrirtækjarekstur og bókhald.
Dagskrá:
11:50 Afhending gagna
12:05 Fundur settur og hádegisverður borinn fram
12:20 Stafræn umbreyting - sýn fjármálastjóra
Í erindinu er fjallað um tækifæri fjármálstjóra til að nýta tækni til aukinnar skilvirkni, áreiðanleika gagna og virðissköpunar, sem og mikilvægi samstarfs fjármáladeilda og UT deilda.
Sunna Dóra Einarsdóttir, Deloitte
12:40 Af hverju að uppfæra í nýjan Evrópustaðal?
Rafrænir og sjálfvirkir reikningar í bókhaldi borgarinnar. Reynt verður að svara spurningunni af hverju að uppfæra í nýjan Evrópustaðal fyrir rafræna reikninga en einnig verður fjallað um mikilvægi þess að ná fram almennri og vandaðri innleiðingu á staðlinum.
Lúðvík Vilhelmsson, Reykjavíkurborg
13:00 Rafrænn fyrirtækjarekstur, tækifæri og áskoranir
Auðkenningar, undirskriftir og traust eru forsendur skuldbindinga, en gæði geta verið mismunandi. Fjallað verður um tækifærin og áskoranirnar sem rafrænar auðkenningar og rafrænar undirskriftir færa okkur og hvernig við byggjum upp traust á rafrænum ferlum nú þegar eIDAS reglugerðin hefur verið innleidd í íslenskan rétt.
Elfur Logadóttir, ERA
13:20 Notkun greiðslutilkynninga hjá opinberum aðilum og birgjum þeirra
Nýr íslenskur staðall Greiðslutilkynning TS-142 var gefinn út á árinu. Honum er ætlað að auðvelda fyrirtækjum afstemingar á greiðslum frá stórkaupendum.
Þorvaldur E. Sigurðsson, TESCON
13:40 Sjálfvirknivæðing viðskiptaferla (xPa) – Look beyond the Hype
Robotic Process Automation (RPA) hefur þróast verulega undanfarin ár, en við þurfum að horfa inn á við hvað þetta þýðir í raun og veru og hvað þarf að gera til að ná fram raunverulegu virði í allri virðiskeðjunni. Farið verður yfir tækifærin sem í þessu felast og helstu áskoranir sem fylgja.
Svavar H. Viðarsson, Origo
14:00 Fundarslit
Fundarstjóri: Bergljót Kristinsdóttir
Undirbúningsnefnd: Ský og Icepro
-
18. september 2019
-
kl. 12:00 - 14:00
-
Grand hótel, Sigtúni 38, 105 Reykjavík
Háteigur, 4. hæð
-
Félagsmenn Ský: 6.400 kr.
Utanfélagsmenn: 10.500 kr.
Félagar utan vinnumarkaðar: 4.000 kr. -
Kjúklingabringur Gordon bleu, m. osti, skinku og hvítvínssósu.
Sætindi / kaffi /te á eftir