GDPRvefir
Stafrænir miðlar og markaðssetning í kjölfar GDPR
Utanfélagsmenn: 10.500 kr.
Félagar utan vinnumarkaðar: 4.000 kr.
Sætindi / kaffi /te á eftir
Innleiðing nýju persónuverndarlöggjafarinnar (GDPR) sl. sumar hafði mikil áhrif á hugbúnaðarumhverfi, markaðsumhverfi og fleiri aðila í atvinnulífinu er vinna með persónuupplýsingar. Mikil vinna og undirbúningur átti sér stað hjá fyrirtækjum og stofnunum til að aðlaga ferla og vinnubrögð í þeim tilgangi að framfylgja hinum nýju lögum. En hvernig hefur tekist til? Hver er staðan í vef og markaðsbransanum gagnvart löggjöfinni? Hvað þurfa fyrirtæki og þjónustuaðilar þeirra að hafa í huga? Eru lögin skýr gagnvart stafrænni vinnslu upplýsinga? Hver er lærdómurinn? Hvað hefur verið gert gott og hvað hefur verið slæmt?
Fundurinn er einkum ætlaður vef- og hugbúnaðarfólki, markaðsfólki og stjórnendum svo eitthvað sé nefnt.
Dagskrá:
11:50 Húsið opnar
12:05 Fundur settur og hádegisverður borinn fram
12:20 Persónuvernd og öryggi vefja: GDPR eins árs!
Fjallað verður um persónuverndarreglurnar og hvernig þær geta aðstoðað við að tryggja öryggi vefja. Þá verður litið yfir farinn veg frá því að GDPR tók gildi 25. maí 2018, helstu áskoranir sem komið hafa upp og leiðir til lausnar.
Vigdís Eva Líndal, skrifstofustjóri upplýsingaöryggis hjá Persónuvernd
12:40 Virðisaukandi persónuvernd
Fjallað verður um hvað vönduð vinnubrögð geta gert fyrirtækjum gott þegar kemur að persónuvernd. Eins verður miðlað af reynslu í þeim viðbrögðum sem fyrirtæki hafa gripið til vegna nýrra persónuverndarlaga.
Kristinn Ásgeir Gylfason, lögfræðingur hjá Dattaca Labs
13:00 Blessaðir kökuborðarnir
Farið verður yfir það hvaða atriði vefstjórar þurfa að hafa í huga varðandi persónuverndarmál á dæmigerðum vefjum og hvers vegna vafrakökuborðar eru margir hverjir marklaus truflun fyrir vefnotendur.
Þórarinn Stefánsson, ráðgjafi hjá Hugsmiðjunni
13:20 Stafræn markaðssetning fyrir og eftir innleiðingu GDPR
Fjallað verður um reynslu stafrænu auglýsingastofunnar Sahara af ferlinu sem fór í gang með viðskiptavinum þegar kom að innleiðingu nýrrar persónuverndarlöggjafar.
Ásthildur Gunnarsdóttir, rekstrarstjóri samfélagsmiðladeildar hjá SAHARA
13:40 Pallborðsumræður
14:00 Fundarslit
Fundarstjóri: Elfur Logadóttir, framkvæmdastjóri ERA
-
21. maí 2019