Snjallvæðing
Hádegisfundur á Grand hóteli
26. október kl. 12-14
“Hvert stefnum við í innleiðingu á snjalllausnum”
TWITTER: @SKYICELAND #SNJALL
Allir mögulegir hlutir eru orðnir eða á leiðinni að verða snjallir í dag. Þetta hugtak heyrist eða sést all oft í daglegu tali fólks, en hvar er þessi snjallvæðing stödd í dag? Á hverju byggir allt þetta snjall eitthvað? Jú mikið rétt; Fjarskiptum! Fjarskipti koma hér mjög sterkt inn því margt, ef ekki flest í snjallvæðingunni byggir á því að tengjast innbyrðis eða kerfismiðju sem gerist með aðstoð fjarskiptanna. Í eftirfarandi fyrirlestraröð verður staða verkefna nokkurra aðila kynnt og þeim betur lýst í hverju viðkomandi snjallvæðing felst.
Einnig verður dregin upp mynd af þróun verkefna á þessu sviði á komandi árum og fyrirlesarar dagsins verða spurðir út í það hvort og hvaða innviðir séu mögulega að bremsa þessa þróun eða jafnvel ýta undir hana.
Fyrirlestrar dagsins eru hugsaðir fyrir alla sem hafa áhuga á þróun snjallvæðingar komandi ára.
Dagskrá:
11:50-12:05 Afhending gagna
12:05-12:20 Fundur settur og hádegisverður borinn fram
12:20-12:40 Snjöll öryggiskerfi
Auður Lilja Davíðsdóttir, Öryggismiðstöðin
12:40-13:00 Snjallborgin Reykjavík (Smart City)
Kristinn Jón Ólafsson, Reykjavíkurborg
13:00-13:20 Snjallnet
Guðjón Hugberg Björnsson, Landsnet
13:20-13:40 Snjallar M2M viðskiptalausnir (M2M: machine to machine)
Sigurður Amlín Magnússon, Vodafone
13:40-14:00 Snjallræður og enn snjallari fyrirspurnir
14:00 Fundarslit
Fundarstjóri: Bára Mjöll Þórðardóttir, Vodafone
Undirbúningsnefnd: Stjórn faghóps Ský um fjarskipti
Matseðill: Pönnusteikt rauðspretta með kryddjurtar risotto. Steiktu grænmeti, lime sósu og fennelsalati. Sætindi / kaffi /te á eftir.
Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský: 5.900 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn: 9.700 kr.
Þátttökugjald fyrir aðila utan vinnumarkaðar: 4.000 kr.
-
26. október 2016