Kennum þeim að læra
Um notkun upplýsingatækni til að auka árangur nemenda og hjálpa þeim að verða sjálfstæðir námsmenn.
10. desember 2015 kl. 8:30-16:00: Grand Hótel Reykjavík
Í samstarfi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, Námsbrautar um nám fullorðinna við Háskóla Íslands, Kvasis, Norræna tengslanetsins um nám fullorðinna (NVL), Skýrslutæknifélags Íslands og 3f – Félags um upplýsingatækni og menntun.
Fólk sem vinnur við að skipuleggja nám fyrir fullorðna og kenna fullorðnum í alls konar samhengi hefur lengi verið sammála um það að það sé hlutverk fullorðinsfræðara að haga vinnu sinni þannig að þátttakendur verði færari í því að læra upp á eigin spýtur og að þátttaka í fullorðinsfræðslu – alls konar – stuðli að því að þátttakendur verði færir „ævi-námsmenn“, færir um að læra sjálfir, sjálfstætt það sem þeir þurfa í gegnum breytingar sem óumflýjanlega verða á lífsleiðinni. Þetta verður viðfangsefni þessarar ráðstefnum og verður það skoðað frá mörgum sjónarhornum.
Nánari upplýsingar um dagskrá, skráningu og verð
-
10. desember 2015