Öryggi og vefstjórnun
Hádegisfundur á Grand hóteli
21. október 2015 kl. 12 - 14
„HVAÐ ÞARF VEFSTJÓRINN AÐ VITA UM ÖRYGGISMÁL?“
- Öryggismál á mannamáli
Twitter: @SkyIceland #oryggivefja
Faghópur Ský um vefstjórnun ásamt öryggishópi bjóða upp á áhugaverðan viðburð þar sem fjallað verður um öryggismál á mannamáli.
Vefstjórar þurfa að þekkja allar hliðar vefmálanna og þar eru öryggismálin ekki undanskilin. Nauðsynlegt er að vera meðvitaður um vaxandi hættu á netárásum. Á fundinum fá vefstjórar fróðleik um hvað þeir geti gert til að stuðla að öruggari vefjum, finna hvaða leiðir eru í boði og hverjir þurfa að koma að málum.
Fjórir fyrirlesarar ræða mismunandi hliðar á þessu knýjandi viðfangsefni með það að markmiði að upplýsa og gera vefstjóra betur í stakk búna til að aðstoða tæknifólk í baráttunni gegn netglæpum.
Þetta er hádegisfundur sem vefstjórar og tæknifólk ættu ekki missa af.
Dagskrá:
11:50-12:05 Afhending gagna
12:05-12:20 Fundur settur og hádegisverður borinn fram
12:20-12:40 Hvað er rétt að vefstjórar séu að gera í öryggismálum?
Theódór R. Gíslason – Syndis
12:40-13:00 Staða öryggismála á opinberum vefjum
Guðbjörg Sigurðardóttir – Innanríkisráðuneytið
13:00-13:20 Hvernig auðkennum við vefi og notendur?
Sveinbjörn Óskarsson – Advania
13:20-13:40 Hvernig líður vefstjóra eftir öryggisúttekt? - Reynslusaga
Hildur Óskarsdóttir – Flugfélag Íslands
13:40-14:00 Pallborðsumræður
14:00 Fundarslit
Fundarstjóri: Guðný H. Danivalsdóttir - Íslandsbanka
Undirbúningsnefnd: Stjórn faghóps um vefstjórnun og Hörður Helgi Helgason úr stjórn öryggishóps.
Matseðill: Kjúklingabringa tikka masala með hrísgrjónum og grænmeti. Grillað flatbrauð.
Konfekt / kaffi /te á eftir.
Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský: 5.500 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn: 8.900 kr.
Þátttökugjald fyrir aðila utan vinnumarkaðar: 3.500 kr.
-
21. október 2015