Hin mörgu andlit vefstjórans
Hádegisfundur á Grand hóteli 23. sept. kl. 12-14
“HIN MÖRGU ANDLIT VEFSTJÓRANS”
Twitter: @SkyIceland #StarfVefstjorans
Viðburðurinn fjallar um hinar mörgu hliðar á starfi vefstjórans. Starfið er í stöðugri mótun og er breytilegt frá einu fyrirtæki til annars. Á fundinum verða kynntar niðurstöður úr viðhorfskönnun vefstjóra til starfsins. Þrír fyrirlesarar lýsa eigin sýn á starfið og miðla af reynslu sinni. Markmið með fundinum er að auka umræðu um starf vefstjórans, efla virðingu fyrir hlutverkinu og ræða hvaða kröfur eigi að gera til þeirra sem sinna vefmálum í fyrirtækjum.
Allir þeir sem áhuga hafa á vefmálum, markaðsmálum og rafrænni þjónustu ættu að hafa gagn og gaman af.
Takið endilega þátt í könnun um starf vefstjórans
Með öflugri þátttöku fáum við betri mynd af starfsumhverfinu.
Dagskrá:
11:50-12:05 Afhending gagna
12:05-12:20 Fundur settur og hádegisverður borinn fram
12:20-12:40 Starfsumhverfi vefstjóra á Íslandi
Niðurstöður könnunar um starf vefstjóra
Sigurjón Ólafsson, Fúnksjón
12:40-13:00 Markaðsvefstjórinn
Pétur Rúnar Guðnason, Stefna
13:00-13:20 Tæknivefstjórinn
Kjartan Sverrisson, Wow Air
13:20-13:40 Verkefnavefstjórinn
Margrét Valgerður Helgadóttir, Kópavogsbæ
13:40-14:00 Pallborðsumræður
Allir fyrirlesarar taka þátt
14:00 Fundarslit
Fundarstjóri: Hrafnhildur Sverrisdóttir, Advania
Undirbúningsnefnd: Stjórn faghóps um vefstjórnun
Matseðill: Marrikost kryddað lambalæri með steiktu grænmeti og jógúrtsósu. Kaffi/te og konfekt á eftir.
Verð fyrir félagsmenn Ský: 5.500 kr.
Verð fyrir utanfélagsmenn: 8.900 kr.
Verð fyrir aðila utan vinnumarkaðar: 3.500 kr.
-
23. september 2015