Tækifærin í upplýsingunum
Hádegisfundur á Grand hóteli 29. apríl 2015 kl. 12-14
"Tækifærin í upplýsingunum: gagnavinnsla og gervigreind"
Mörg fyrirtæki hafa aðgang að og safna gríðarlegu magni gagna á degi hverjum. Hvernig eru fyrirtæki í dag að vinna með þessi gögn og breyta þeim í upplýsingar sem hægt er að nýta sér til framdráttar?
Með gervigreind er yfirleitt átt við hvort tölva geti skynjað umhverfi sitt og tekið ákvarðanir á svipaðan hátt og manneskjur, en mun næsta bylting í tölvuleikjaheiminum vera félagsgreind sem byggir á gervigreind?
Á þessum hádegisfyrirlestri fáum við að heyra hvernig nokkur áhugaverð fyrirtæki eru að nýta sér gagnavinnslu (Big Data) og kynnumst einnig fræðimönnum í háskólasamfélaginu. Við hvetjum alla sem vinna við eða hafa áhuga á gögnum, upplýsingum og gagnavinnslu að mæta og sjá hvað er spennandi að gerast á þessu sviði.
Twitter: @SkyIceland #GagnaGervi
Dagskrá:
11:50-12:00 Afhending gagna
12:00-12:15 Fundur settur og hádegisverður borinn fram
12:15-12:35 Hvað er gervigreind?
Kristinn Rúnar Þórsson, Háskólinn í Reykjavík
12:35-12:55 Gagnagreind - vitræn framsetning og sjálfvirkar greiningaraðferðir á sívaxandi gagnasöfnum
Thomas Philip Runarsson, Háskóli Íslands
12:55-13:15 Félagsgreind - næsta bylting í tölvuleikjum?
Hannes Högni, Gervigreindarsetrið í HR
13:15-13:30 Úr handavinnu í handverk - ferðalag Meniga um gagnavinnslu
Tryggvi Jónsson, Meniga
13:30-13:45 Hrágagnagreining með RedShift hjá QuizUp
Stefanía Bjarney Ólafsdóttir, Plain Vanilla Games
13:45-14:00 Erfðarannsóknir með stórvirkum vinnuvélum - gögnum breytt í uppgötvanir
Gísli Másson, DeCode
14:00 Fundarslit
Fundarstjóri: Sigurhanna Kristinsdóttir, Hugsmiðjan
Undirbúningsnefnd: Stjórn faghóps Ský um hugbúnaðargerð.
Matseðill:Kjúklinga quesadillas kryddhrísgrjón, grænmeti. Konfekt / kaffi /te á eftir.
Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský: 5.500 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn: 8.900 kr.
Þátttökugjald fyrir aðila utan vinnumarkaðar: 3.500 kr.
-
29. apríl 2015