Verðlaunavefir
Á leiðinni heim…
Kjallari Engjateigi 9
17. mars 2015kl. 16:30 -18
"Hvernig verður verðlaunavefur til?"
Twitter: @SkyIceland #Verdlaunavefir
Vilja ekki allir læra að smíða verðlaunavef? Í fjórum örkynningum fáum við innsýn í ferlið við smíði á fjórum vefjum sem allir hlutu viðurkenningu á dögunum á Íslensku Vefverðlaununum.
Heilsuvera.is var valinn besti íslenski vefurinn árið 2014 á meðan vefur Dominos (dominos.is) skaraði fram úr fyrir hönnun og viðmót. Besti non-profit sem og einstaklings vefurinn var hvaderibio.is á meðan Blær (blaer.is) var valinn athyglisverðasti vefurinn. Besti opinberi vefurinn var vefur Samgöngustofu (samgongustofa.is)
Komdu við á leiðinni heim úr vinnunni, hlustaðu á stutt erindi og taktu þátt í umræðu meðal kollega.
Dagskrá kl. 16:30 - 18:00:
Samgongustofa.is
Þórhildur Elín Elínardóttir, upplýsingafulltrúi Samgöngustofu
Hvaderibio.is / Blaer.is
Hugi Hlynsson, vefhönnuður
Dominos.is
Egill Þorsteinsson, þjónustustjóri Dominos
Heilsuvera.is
Atli Mar Gunnarsson, TM Software
Umræður
Fundarstjóri: Hjalti Már Einarsson, forstöðumaður vef- og markaðssviðs Nordic Visitor
Undirbúningur var í höndum stjórnar faghóps Ský um vefstjórnun.
Ókeypis fyrir félagsmenn Ský aðrir greiða 1.000 kr. (posi á staðnum).
Tilkynnið þátttöku með því að senda tölvupóst á sky@sky.is í síðasta lagi 16. mars.
-
17. mars 2015