Spjaldtölvur og tölvuský á vinnustaðnum
Hádegisfundur á Grand hóteli
miðvikudaginn 4. apríl kl. 12-14
Spjaldtölvur og tölvuský á vinnustaðnum
- öryggismál -
Twitter: #oryggis
Mikil aukning í notkun snjallsíma og spjaldtölva veldur öryggisvandamálum í rekstri fyrirtækja þegar starfsmenn sækja fast að mega nota slík tæki að heiman við vinnu sína. Brýnt er að skoða hvað sé til ráða. Öryggishópur Ský stendur því fyrir hádegisfundi um þetta málefni.
Fundurinn er einkum ætlaður þeim sem taka þurfa ákvarðanir um aðgengi spjaldtölva og snjallsíma að upplýsingavinnslu á vinnustöðvum og öðrum sem áhuga hafa á spjaldtölvum, snjallsímum og upplýsingaöryggi.
Dagskrá:
11:50-12:05 Afhending gagna
12:05-12:20 Fundur settur - hádegisverður borinn fram
12:20-12:40 Vandamálið eins og það blasir við fyrirtækjum
Þorsteinn Einarsson, Opin kerfi
12:40-13:00 Vandamálið eins og það blasir við Landspítalanum
Björn Jónsson, Landspítalinn
13:00-13:20 Rekjanleiki og ábyrgðarskylda
Ingimar Örn Jónsson, Reiknistofnun Háskóla Íslands
13:20-13:45 Hvað er hægt að gera?
Tryggvi R. Jónsson, Deloitte
13:45-14:00 Umræður og fundarslit
Fundarstjóri: Laufey Ása Bjarnadóttir, Gagnavarslan
Undirbúningsnefnd - faghópur Ský um öryggismál:
Hörður Helgi Helgason - Landslög, Sigurður Másson - Advania, Elías Halldór Ágústsson - Reiknistofnun Háskóla Íslands, Stefán Snorri Stefánsson - Póst- og fjarskiptastofnun, Bergsveinn Þórarinsson - Nýherja, Kristján Valur Jónsson - stud. dr. comp. sci.og Sturla Þór Björnsson - Advania
Matseðill: Steinbíts og laxa ballontine (rúlla) á rösti kartöflum og kryddjurtasósu. Kaffi/te og konfekt.
Verð:
Fyrir félagsmenn Ský: 4.900 kr.
Fyrir utanfélagsmenn: 7.900 kr.
Fyrir aðila utan vinnumarkaðar: 3.000 kr.
-
4. apríl 2012