Hagræðing með sýndarvæðingu
Hagræðing með sýndarvæðingu
Hádegisverðarfundur á Grand Hótel miðvikudaginn 27. október kl. 12 – 14
Sýndarvæðing (e. virtualization) á innviðum tölvukerfa hefur farið mikið vaxandi síðustu ár. Hafa margir séð hagræði í að fækka netþjónum í tölvusölum, en á að láta þar staðar numið ? Á þessari ráðstefnu heyrum við reynslusögur af íslenskum innleiðingum á sýndarþjónum og hver ávinningurinn er. Er sýndarvæðing sýndarhagræðing? Hver er viðskiptalegur ávinningur sýndarvæðingar? Að síðustu er fjallað um hvað er framundan og á hvaða fleiri vegu má nýta sýndartækni.
Ráðstefna er hugsuð þeim sem koma að ákvarðantöku í innviðum upplýsingakerfa, auk annarra sem áhuga hafa á að fylgjast með framþróun á þessu sviði.
Dagskrá:
11:50 – 12:05 Afhending ráðstefnugagna
12:05 – 12:20 Fundur settur
Jón Harry Óskarsson, Microsoft Corporation
12:20 – 12:40 Sýndarvæðing í hugbúnaðarþróun
Guðmundur Kristjánsson, Tölvumiðlun
12:40 – 13:00 Reynslusaga: Sýndarvæðing hjá CCP
James Wyld, CCP
13:00 – 13:20 Reynslusaga: Air Atlanta
Gnúpur Halldórsson, Air Atlanta
13:20 - 13:40 EJS : Viðskiptalíkan upplýsingakerfa
Jóhann Áki Björnsson, EJS
13:40 - 14:00 Sýndarvæðing : Hvað tekur við
Guðmundur Arnar Þórðarson, Skyggni
14:00 Fundi slitið
Fundarstjóri: Jón Harry Óskarsson, Microsoft Corporation
Matseðill : Kjúklingabringa með bacon / parmesan hjúp. Barbeque sósa og rösti kartöflur.
Kaffi/te og konfekt á eftir.
Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský 4.900 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn 7.900 kr.
Þátttökugjald fyrir aðila utan vinnumarkaðar 3.000 kr.
Undirbúningsnefnd: Bjarni Sigurðsson, Póst-og fjarskiptastofnun, Sigurður Friðrik Pétursson, Microsoft og Jón Harry Óskarsson, Microsoft
-
27. október 2010