Stjórnun verkefna
“Stjórnun
verkefna“
örnámskeið á leið heim!
Fimmtudaginn 5. febrúar 2009 kl. 16:30 – 18:00 ætlar
SKÝ að standa fyrir stuttu örnámskeiði í stjórnun verkefna fyrir félaga sem vilja fá
hnitmiðaða kynningu en hafa lítinn tíma. Örnámskeiðið verður
haldið að Engjateigi 9 í salnum á neðstu hæð.
Ef þú tekur þátt í eða berð ábyrgð á verkefnum hjá þínu fyrirtæki eða ef þú hefur áhuga að kynna þér nýjar aðferðir við verkefnisstjórnun ættir þú alls ekki að missa af þessu örnámskeiði.
Við fáum þrjá reynslubolta til að kynna fyrir okkur aðferðir við verkefnastjórnun og listina að velja réttar aðferðir fyrir ólík verkefni.
Dagskrá:
16:30 | Náðu árangri með PRINCE2 sjá glærur |
16:50 | Scrum á tússtöflunni |
17:10 | 5 mínútur |
17:15 | Klæðskerasniðin verkefnastjórnun sjá glærur |
17:35 | Samantekt |
17:45 | Spurningar og umræður |
18:00 | Námskeiði slitið |
Skráðu þig núna með því að senda póst á sky@sky.is eða að hringja
í síma 553 2460.
Leiðbeinendur eru: Birna Ósk Einarsdóttir, verkefnisstjóri hjá Símanum, Daði Ingólfsson, ráðgjafi og þjálfari hjá Spretti ehf. og Halldór Kristjánsson, framkvæmdastjóri og eigandi Tölvu- og Verkfræðiþjónustunnar ehf.
Í undirbúningsnefnd eru:
Bjarni Sigurðsson, Ragnheiður H. Magnúsdóttir og Sigrún Gunnarsdóttir frá stjórn Ský
Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský er kr. 2.500
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn er kr. 3.500
Þátttökugjald fyrir námsmenn er kr. 1.000 við framvísun námsskírteinis
-
5. febrúar 2009