Skip to main content

Gervigreind í verki

Gervigreind er orðin hluti af daglegu starfi fyrirtækja og stofnana. Hún hefur áhrif á hvernig við vinnum, tökum ákvarðanir og þróum vörur og þjónustu. Á fundinum deila fyrirlesarar úr atvinnulífinu sjónarhornum og reynslu af notkun gervigreindar, bæði tækifærum og áskorunum. Viðburðurinn er áhugaverður fyrir stjórnendur, sérfræðinga og alla sem vilja fylgjast með hvernig gervigreind er að breyta vinnustöðum.

Dagskrá:

11:50   Léttur hádegisverður (fyrir framan Kaldalón) og tengslanetið styrkt

Gísli Rafn Ólafsson
12:15   Þegar gervigreindin afhjúpar leiðtoga
Gervigreindin gerir ekki leiðtoga óþarfa, en hún afhjúpar það hvernig leiðtogar eru að standa sig. Í fyrirlestrinum er rætt um gervigreindina, ekki út frá tækninni sjálfri heldur hlutverki leiðtoga í að innleiða hana og þau mistök sem flestir leiðtogar upplifa í því ferli.
LinkedIn logo  Gísli Rafn Ólafsson, Griðland Ráðgjöf
Anna Garðarsdóttir
12:35   Stefna um gervigreind: Að verða betri í að verða betri
Stefna um gervigreind felur í sér ákvarðanir um hvernig fyrirtæki ætlar að bregðast við henni. Í erindinu er lögð áhersla á að hluti þeirrar stefnu sé að byggja markvisst upp getu fyrirtækisins til að læra og aðlagast. Fjallað verður um hvernig stjórnendur geta skipulagt starfið þannig að fyrirtækið verði betra í að greina tækifæri, þróa lausnir og meta árangur. Markmiðið er bæði að skapa verðmæti og styrkja getu fyrirtækisins til áframhaldandi umbóta.
LinkedIn logo  Anna Garðarsdóttir

12:55   Stutt hlé og fyllt á kaffibollann

Jón Skírnir Ágústsson
13:00   „Af hverju notið þið ekki bara ChatGPT?“ – Þegar gervigreindin er lækningatæki
Hvað gerist þegar gervigreind er bæði verkfæri við hugbúnaðargerð og hluti af lækningatækinu sem verið er að þróa? Með dæmum úr þróun gervigreindar sem greinir lífeðlisfræðileg tímaraðagögn verður fjallað um hvernig gervigreind nýtist við hugbúnaðarþróun, gagnagreiningu, prófanir og skjölun. Jafnframt verður rætt um hvernig fyrirhuguð notkun, sjúklingahópar, áhættustýring og klínísk sannprófun móta lausnina og hvaða kröfur þarf að uppfylla áður en hægt er að nota hana við greiningu sjúklinga.
LinkedIn logo  Jón Skírnir Ágústsson, Nox Medical
13:20   
Í vinnslu
LinkedIn logo   
Jón Levy Guðmundsson
13:40   Hvernig við kennum AI-ágentum (erindrekum) að læra af mistökum sínum (án þess að drekkja þeim í gögnum)

LinkedIn logo  Jón Levy Guðmundarson, APRÓ

14:00   Fundarslit

Fundarstjóri:
LinkedIn logo   




  • Félagsmenn Ský:     8.300 kr.
    Utanfélagsmenn:   14.900 kr.
    Félagar utan vinnumarkaðar: 6.000 kr.
  • Léttur hádegisverður:
    Súrsætt svínakjöt með hrísgrjónum (LF). Asískur stir fry grænmetispottréttur (V,GF). Grænt salat (V,GF). Stökkt hvít- og rauðkálssalat (V,GF). Edamame baunir í sesam og soja (V,GF). Nýbakað brauð, smjör og kryddjurtahummus (V,GF).