Skip to main content

Tækni er viðskipti - viðskipti er tækni

Hvernig upplýsingatækni snertir alla þætti er að breytast mjög hratt. Það er leitun að þeirri vöru sem ekki inniheldur upplýsingatækni, þótt í mismiklum mæli sé. Upplýsingatækni er ekki eitthvað sem við tökum út fyrir sviga og ræðum sérstaklega heldur er tæknin orðin samgróin allri vöruþróun og framleiðsluferlum hvort sem lokaafurðin er alfarið stafræn eða raunlæg vara. Samtalið á milli þeirra sem voru vanir að fást eingöngu við tækni og þeirra sem hafa álitið sig yfirstjórnendur fyrirtækjanna þarf því að breytast.

Dagskrá:

11:50   Léttur hádegisverður (fyrir framan Kaldalón) og tengslanetið styrkt

Eiður Eiðsson
12:15   Tækni á tungumáli viðskipta og hvað svo
Flestir UT leiðtogar eru vanir að mæla árangur sinn í uppitíma, SLA og fjölda afgreiddra beiðna. En hvernig lítur þetta út frá sjónarhorni stjórnenda rekstrareininga. Við förum yfir hvernig UT einingar geta umbreytt samtalinu við rekstrareiningar — úr því að litið sé á UT sem kostnaðarstöð yfir í virðisskapandi einingu. Þar að auki er farið yfir hvernig stjórnendur nútíma fyrirtækja þurfa sjálfir að vera tæknilega meðvitaðir, til að leiða áfram, spyrja réttu spurninganna og nýta sér tæknina sem samkeppnisforskot.
LinkedIn logo  Eiður Eiðsson, Hagar
Sigfinnur Valur Viggósson
12:35   Hvernig brúum við öryggisbilið
Hvenær fékkstu síðast þögn sem svar þegar þú kynntir tæknilegt málefni fyrir stjórnanda? Þögn þýðir ekki endilega að ekki sé hlustað – hún þýðir oftar að við tölum ekki sama tungumál. Við förum yfir hvernig við brúum þetta bil og gerum tæknilega áhættu skiljanlega fyrir ákvarðanatöku.
LinkedIn logo  Sigfinnur Valur Viggósson, Origo

12:55   Stutt hlé og fyllt á kaffibollann

Guðmundur Arnar Þórðarsson
13:00   Að brúa bilið
Í erindinu er fjallað um hvernig hægt er að brúa bilið milli viðskiptalegra markmiða og upplýsingatækni þannig að tæknin styðji raunverulega við stefnu, forgangsröðun og árangur. Áhersla er á heildarsýn, samspil fólks, ferla og tækni, og hvers vegna svo mörg verkefni lenda á milli viðskipta og tækni (deilda/fólks).
LinkedIn logo  Guðmundur Arnar Þórðarson, Intellecta
Helga Rún Jónsdóttir
13:20   Þora að þróast
Fyrirtæki þurfa að aðlagast nýjum veruleika þar sem samkeppnisforskot ræðst af því hversu vel þau fylgja hraða tækninnar. Heimurinn er að breytast hraðar en áður, og tæknin gerir fyrirtækjum kleift að vaxa hraðar og eykur tækifæri þeirra til að keppa á alþjóðlegum mörkuðum. Stjórnendur geta haldið aftur af þessari þróun og það þarf að breytast.
LinkedIn logo  Helga Rún Jónsdóttir, Swapp Agency
Guðmundur Arnar Þórðarsson
13:40   Tækni og þjónusta
Í vinnslu
LinkedIn logo   Fanney Gunnarsdóttir, Advania

14:00   Fundarslit

Ásta Ólafsdóttir
Fundarstjóri:
LinkedIn logo  Ásta Ólafsdóttir, Origo




  • Félagsmenn Ský:     8.300 kr.
    Utanfélagsmenn:   14.900 kr.
    Félagar utan vinnumarkaðar: 6.000 kr.
  • Léttur hádegisverður:
    Súrsætt svínakjöt með hrísgrjónum (LF). Asískur stirfry grænmetispottréttur (V, GF). Grænt salat (V, GF). Stökkt hvít- og rauðkálssalat (V, GF). Edamame baunir með sesam og soya (V, GF). Nýbakað brauð, smjör og kryddjurtahummus (V, GF).