Siðareglur
Góðir siðir teljast:
-
að koma heiðarlega fram við viðskiptavin, seljanda búnaðar, vinnuveitanda, launþega, keppinauta, samstarfsaðila, opinbera aðila eða almenning í landinu og hvorki skaða viljandi né nota vafasama starfshætti;
-
að dreifa ekki upplýsingum sem veittar eru í trúnaði eða misnota þær;
-
að virða höfundarétt, vörumerki, einkaleyfi og annan huglægan rétt;
-
að upphefja ekki sjálfan sig á kostnað annarra og taka tillit til annarra;
-
að beita ekki illkvittni eða röngum ásökunum;
-
að hlíta lögum og reglum um viðskiptahætti;
-
að taka ekki við þóknunum eða fríðindum frá þriðja aðila nema samþykki verkkaupa komi til, þegar unnið er sem verktaki eða ráðgjafi.
Æskilegt er talið:
-
að auka færni sína sem mest á hverjum tíma;
-
að auka orðstír félagsins;
-
að miðla af faglegri reynslu sinni á vettvangi félagsins.
Samþykkt á aðalfundi 1992