Dílar og deplar
Í stafrænni myndvinnslu er algengt að lýsa flatri mynd með því að
hugsa sér hana skipta upp í fjölmarga rétthyrnda reiti, sem kallast
dílar og hafa hver um sig tiltekinn lit og tiltekinn styrkleika. Til
þess að lýsa skerpu myndar er oft tilgreindur fjöldi díla á
lengdareiningu. Minnt er á dílana hér og nú vegna þess að ennþá ber
nokkuð á því að enska orðið pixel, sem er stytting á picture element,
(eða afbakaða myndin pixill) rati inn í íslenskar auglýsingar um
stafrænar myndavélar, skanna og annan tölvubúnað í stað þess ágæta orðs
díll.
Varast ber að rugla saman dílum og deplum. Depill er jafngildi enska
heitisins dot. Þegar til dæmis litaprentari prentar stafræna mynd getur
hann þurft að prenta marga depla fyrir hvern díl myndarinnar til að
mannsaugað skynji réttan lit og birtu á prentuðu myndinni. Til þess að
lýsa því hversu fíngerðri prentaðri mynd ákveðinn tölvuprentari getur
skilað er oft tilgreindur fjöldi depla á lengdareiningu.