Ský er félag fyrir fólk og fyrirtæki í upplýsingatækni
Við miðlum þekkingu og tengjum fólk sem starfar í eða hefur áhuga á upplýsingatækni. Hlutverk Ský er að bjóða upp á fjölbreytta og metnaðarfulla viðburði í formi fræðslufunda og ráðstefna um upplýsingatækni og hlúa að því öfluga þekkingar- og tengslaneti sem myndast hefur innan félagsins.
Félagið er óháður félagsskapur, opið öllum og rekið sem „non-profit“ félag án hagnaðarmarkmiða. Tilgangur Ský er að miðla þekkingu milli þeirra sem starfa við eða hafa áhuga á upplýsingatækni. Félagið býr yfir gífurlegu tengslaneti og stendur reglulega fyrir fjölbreyttum viðburðum um tækni. Ský var stofnað árið 1968 og hefur starf þess sjaldan verið jafnt öflugt og nú.
Eins og sést á myndinni hér fyrir ofan er starfsemi félagsins umfangsmikil og mismunandi hliðum tölvutækninnar sinnt og reynt að höfða til allra aldursflokka á sem fjölbreytilegastan hátt.
Félagsmenn Ský eru um 1.100 og til viðbótar eru á póstlistanum yfir 4.000 aðilar:
- forstjórar og framkvæmdastjórar, fjármála- og innkaupastjórar, gæðastjórar
- kerfisfræðingar, tölvunarfræðingar, tækni- og rekstrarfólk, hönnuðir, verkefnastjórar, vörustjórar og aðrir tengdir tæknigeiranum
- stjórnendur tölvudeilda
- stjórnendur fyrirtækja
- nemendur í tæknigreinum
Félagið rekur skrifstofu með tveimur starfsmönnum. Starfsemin felst aðallega í því að halda fræðslufundi um það sem heitast er í heimi UT mála hverju sinni. Leitast er við að hafa erindin fræðandi s.s. reynslusögur eða það nýjasta í viðkomandi umhverfi og því ekki um sölufyrirlestra eða auglýsingar að ræða. Leitað er til félaga Ský, UT fyrirtækja, háskólanna og fleiri um efni og fyrirlesara.
Árlega eru haldnir 25-30 viðburðir í formi hádegis- eða morgunverðarfunda, örnámskeiða og ráðstefna.
Stærsti viðburður Ský er UTmessan, stór ráðstefna og sýning fyrir almenning sem var fyrst haldin árið 2011.
Upplýsingar um viðburði eru sendar með tölvupósti á póstlista Ský. Þátttökugjaldi á viðburði er stillt í hóf með það að leiðarljósi að sem flestir geti tekið þátt.
Upplýsingatækniverðlaun Ský eru veitt árlega frá árinu 2010 fyrir framlag til upplýsingatækni á Íslandi.
Félagið hóf útgáfu tímaritsins Tölvumál árið 1976 og er það eina óháða fagtímaritið á sviði tölvu- og upplýsingatækni hér á landi. Vikulega eru birtar greinar í vefútgáfu Tölvumála á www.sky.is og árlega er gefið út prentað eintak sem dreift er endurgjaldslaust til félagsmanna og á viðburðum Ský.
Einn af hornsteinum félagsins er starf (tölvu)orðanefndar sem hefur starfað nær óslitið frá árinu 1968. Tölvuroðasafnið er aðgengilegt í gegnum tos.sky.is Nefndin hefur staðið fyrir útgáfu fjölda rita og einnig Tölvuorðasafns og kom fimmta útgáfa út á rafrænu formi árið 2013. Líklega eru Íslendingar einna lengst á veg komnir með íslenskun tölvumáls ef litið er til hinna Norðurlandanna. Tölvuorðasafn er afrakstur af áratuga starfi orðanefndar Skýrslutæknifélags Íslands.
Heimasíðan sky.is er andlit félagsins út á við og þar er að finna allar upplýsingar um faghópa og dagskrá viðburða ásamt yfirliti yfir liðna atburði og glærukynningar frá þeim. Þar fara einnig fram skráningar á viðburði svo og á póstlistann eða skráningar í Ský. Auk þess er félagið virkt á Instagram og Facebook ásamt LinkedIn, Youtube og X.
Ávinningur af félagsaðild:
- Lægri þátttökugjöld á viðburði félagsins fyrir félagsmenn
- Greið leið að faghópastarfi innan félagsins og undirbúningsnefndum viðburða
- Þátttaka í ritnefnd og orðanefnd fyrir áhugasama og innsendu efni í fagtímarit félagsins
- Félagsmenn fá veglegan afslátt á viðburði félagsins, m.a. á UTmessuna og greiða þannig hratt upp félagsgjaldið
- Tækifæri til tengslamyndunar við aðra í tölvu- og tæknigeiranum
- Aðgangur að lokuðum viðburðum fyrir félagsmenn, t.d. Vísindaferðir til fyrirtækja
- Þátttaka í starfi stjórna faghópa og nefnda innan Ský
- Áskríft að Tölvumálum, fagtímariti með efni tengdu tækni
- 10% afsláttur af námskeiðum hjá Opna háskóla HR
Faghópar Ský eru opnir öllum félagsmönnum:
- Fókus, faghópur um upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu
- Söguhópur (áður Öldungadeild), faghópur um varðveislu sögulegra gagna um upplýsingatækni á Íslandi
- Fjarskiptahópur, sem hefur fjarskiptamál að leiðarljósi
- Öryggishópur, með öryggismál að leiðarljósi
- Faghópur um rafræna opinbera þjónustu, um bætta upplýsingatækni í opinberri þjónustu
- Faghópur um vefstjórnun, vettvangur faglegrar umræðu um hin ólíku svið vefstjórnunar
- Hugbúnaðarhópur, með faglega umræðu um hin ólíku svið hugbúnaðargerðar að leiðarljósi
- Faghópur um rekstur tölvukerfa, áhersla á að auka þekkingu og skilning á mikilvægi rekstrar tölvukerfa
- Faghópur um menntun, fræðslu og fræðistörf í UT, með áherslu á faglega umræðu um menntun og fræðistörf í UT geiranum
- Faghópur um hagnýtingu gagna, með áherslu á gögn og hagnýtingu þeirra
- Faghópur um stafræna vörustýringu
Auk þessara faghópa eru starfandi ritnefnd og orðanefnd innan félagsins ásamt siðanefnd.
Nánari upplýsingar um félagið er að fá á skrifstofu eða með tölvupósti á netfangið sky@sky.is