Nú vantar stefnuna
Hádegisfundur á Grand hóteli
21. maí kl. 12-13:30
"Nú vantar stefnuna!"
Twitter: @SkyIceland #NuVantarStefnuna
Skort hefur á heildstæða stefnu í net- og upplýsingaöryggismálum á Íslandi. Nú hafa stjórnvöld hrint af stað vinnu er snýr að mótun stefnu um net- og upplýsingaöryggi. Mikilvægur hluti þessarar vinnu er samráð við hagsmunaaðila. Mikilvægt er að einkafyrirtæki og opinberar stofnanir komi að þessari vinnu og komi á framfæri hverjar áherslur þau telja mikilvægastar við þá vinnu.
Öryggishópur Ský stendur að hádegisfundi um þetta málefni. Fundurinn er öllum opinn en það þarf að skrá sig á hann fyrirfram.
Dagskrá:
11:50-12:05 Afhending gagna
12:05-12:15 Fundur settur og hádegisverður borinn fram
12:15-12:35 Ávarp innanríkisráðherra
Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra
12:35-12:50 Hvað er mikilvægast frá sjónarhóli opinberra stofnana?
Skúli Eggert Þórðarson, ríkisskattstjóri
12:50-13:05 Hvað er mikilvægast frá sjónarhóli einkafyrirtækja?
Orri Hauksson, forstjóri Símans
13:05-13:20 Hvað er mikilvægast frá sjónarhóli borgaranna?
Friðrik Skúlason
13:20-13:30 Áskoranir og áherslur
Spjall fyrirlesara og fundargesta
13:30 Fundarslit
Fundarstjóri: Hörður Helgi Helgason, Landslög og formaður faghóps Ský um öryggismál
Undirbúningsnefnd: Hörður Helgi Helgason – Landslög, Sigurður Másson – Advania, Bergsveinn Þórarinsson – Nýherji, Ingimar Örn Jónsson - RHÍ
Matseðill: Humarsalat, pesto, sætar kartöflur, pecanhnetur, hvítlauksbrauð og sítrónurisotto í skeið. Kaffi/te og konfekt á eftir.
Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský 4.900 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn 7.900 kr.
Þátttökugjald fyrir aðila utan vinnumarkaðar 3.000 kr.
-
21. maí 2014