Úttekt opinberra vefja
Hvað er spunnið í opinbera vefi 2007?
Skýrslutæknifélagið boðar til hádegisverðarfundar á Grand Hótel
13. desember 2007 frá kl. 12:00 - 14:00
Á fundinum verða kynntar niðurstöður úr úttekt sem Sjá ehf vann fyrir
forsætisráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga.
Markmiðið með úttektinni er að fá heildstætt yfirlit yfir þá þjónustu
sem er í boði á vefjum ríkis og sveitarfélaga en einnig að auka vitund
opinberra aðila um það hvar þeir standa í samanburði við aðra og gefa
betri hugmynd um möguleika og tækifæri sem felast í rafrænni þjónustu.
Skoðaðir voru 262 vefir ríkisstofnana, ráðuneyta og sveitarfélaga, að meðtöldum sérstökum þjónustuvefjum sem nokkrar stofnanir hafa komið sér upp.
Vefirnir voru metnir meðal annars með tilliti til þjónustu, innihalds,
nytsemi og aðgengis. Einnig voru skoðaðir möguleikar almennings til að
fylgjast með og tjá sig um málefni stofnananna.
Sams konar úttekt var gerð árið 2005 og verður sérlega áhugavert að
skoða hvaða breytingar hafa orðið á þeim tveimur árum sem eru liðin.
Dagskrá:
12:00 | Skráning fundargesta |
12:15 | Fundurinn settur og hádegisverður borinn á borð |
12:35 | Markmið og framkvæmd Halla Björg Baldursdóttir hjá forsætisráðuneytinu |
12:40 | Hvað er spunnið í opinbera vefi 2007? - Niðurstöður úttektar á rafrænni þjónustu og gæðum opinberra vefja Ingibjörg Guðlaug Jónsdóttir og Sigrún Þorsteinsdóttir |
13:25 | Í hnotskurn Áslaug Friðriksdóttir hjá Sjá ehf |
13:30 | Kynning á vefsíðu með ítarlegum niðurstöðum úttektarinnar Halla Björg Baldursdóttir hjá forsætisráðuneytinu |
13:40 | Fyrirspurnir og umræður |
13:55 | Lokaorð, fundi slitið |
Fundarstjóri verður Guðbjörg Sigurðardóttir
Á matseðlinum verður:
Grilluð kjúklingabringa
með grænmetis risotto og spínatsósu og súkkulaðikaka með kahlúa
sósu og jarðaberjum í eftirrrétt
Hægt er að skrá sig með því að senda póst á sky hjá sky.is eða hringja í síma 553-2460
Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský er 4.900 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn er 6.900 kr.
-
13. desember 2007