Hagnýt gervigreind - Líka fyrir þig
Hagnýt gervigreind – líka fyrir þig
Utanfélagsmenn: 10.500 kr.
Félagar utan vinnumarkaðar: 4.000 kr.
Sætindi / kaffi /te á eftir
„Framtíðin er núna“ sagði einhver. Gervigreind er nú þegar í notkun hjá íslenskum fyrirtækjum og ef til vill víðar en margan grunar. Fjallað verður um hvernig er hægt að nýta gervigreind til þægindaauka og til að auka þjónustuframboð.
Fyrir þá sem hafa áhuga á samskiptum manns og tölvu, jafnt stjórnendur sem tæknimenn.
Dagskrá:
11:50 Afhending gagna
12:05 Fundur settur og hádegisverður borinn fram
12:20 Nýting aðferðafræði vöruþróunar í upplýsingatækni
Hraðari framfarir í tækni munu auka kröfur til sveigjanleika og viðbragðsflýtis fyrirtækja, ekki síst hvað varðar upplýsingatækni. Stjórnendur í upplýsingatækni geta nýtt sér aðferðafræði vöruþróunar, til þess að geta á skilvirkari hátt metið ávinning af nýjum möguleikum og tækifærum.
Sigurður Gísli Karlsson, Opin Kerfi
12:50 Þú ert númer sjötíu og fimm í röðinni. Spjallmenni hjá viðskiptavini
Samskipti manns og tölvu eru í sífelldri þróun og fyrir marga lítur út fyrir að Skynet sé ekki á leiðinni heldur mætt á svæði. Sýnd verður notkun spjallmennis (e. chatbot) og farið yfir innleiðingu á slíkum gaur.
Sigrún Lára Sverrisdóttir, Miracle
13:20 Hagnýt gervigreind í rekstri tölvukerfa
Í náinni framtíð mun gervigreind taka við sífellt fleiri hlutverkum í rekstri tölvukerfa, svo sem eftirliti, bilanagreiningu og sjálfvirkum lagfæringum. Sjálfvirknivæðing þessara rekstrarþátta mun hafa í för með sér aukin tækifæri, betri rekstrarumhverfi og fækkun á mannlegum mistökum.
Gísli Guðmundsson, Advania
13:50 Umræður
14:00 Fundarslit
Fundarstjóri: Sigrún Þorgilsdóttir, Opin kerfi
-
3. apríl 2019