UT-dagurinn
UT-dagurinn 2018 á Grand hóteli
fimmtudaginn 6. desember kl. 10:00-16:30
Stafræn framtíð hins opinbera, hvernig byrjum við?
Twitter: @SkyIceland #UTdagurinn
Upptökur af fyrirlestrum er að finna hér
Til að skoða glærukynningar skaltu ýta á heiti fyrirlestrar hér fyrir neðan.
Dagur upplýsingatækninnar 2018, UT-dagurinn, verður haldinn fimmtudaginn 6. desember nk. með ráðstefnu á Grand hóteli í Reykjavík. Dagurinn hefur verið haldinn árlega frá árinu 2006 af stjórnvöldum en að honum standa fjármála og efnahagsráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga og Ský. Tilgangurinn er að fjalla um það sem er efst á baugi í upplýsingatæknimálum í stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga.
Ríkisstjórn Íslands hefur sett sér markmið um að árið 2020 muni stafræn samskipti vera megin samskiptaleið ríkisins við fyrirtæki og almenning. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er markmið um að landsmenn geti á einum stað nálgast þjónustu hins opinbera og sinnt erindum sem beinast að stjórnvöldum.
Til þess að svo megi verða þurfa opinberir aðilar að hefja markvissa vinnu að því að færa sína þjónustu yfir í stafrænt umhverfi. Yfirskrift dagsins í ár er því stafræn framtíð hins opinbera, hvernig byrjum við?
Dagskrá:
10:00-10:15 Setning
10:15-10:30 Stafrænt Ísland – til þjónustu reiðubúin
Einar Birkir Einarsson, verkefnastofu um stafrænt Ísland
10:30-10:50 Island.is – hvernig miðlæg þjónustugátt uppfyllir best þarfir notenda
Fjóla María Ágústsdóttir, verkefnastofu um stafrænt Ísland
10:50-11:00 Kaffihlé
11:00-11:20 Eru opinberir vinnustaðir nýskapandi? Niðurstöður Nýsköpunarvogarinnar birtar í fyrsta sinn
Íris Huld Christersdóttir, fjármála og efnahagsráðuneytinu
11:20-11:50 Beyond Digital in the UK government
Experience of designing services in government an the opportunity that digital transformation presents
Jack Collier og Alice Carter, breska dómsmálaráðuneytinu
11:50-12:30 Hádegishlaðborð
12:30-13:00 Stafræn umbreyting finnska ríkisins
Digitalization of the Finnish government – Case: setting up Digital Agency to boost customer centric public sector
Pekka Rehn, Þjóðskrá Finnlands
13:00-13:20 Stafræn vegferð fjárhagsaðstoðar
Edda Jónsdóttir, Reykjavíkurborg
13:20-13:40 Notendamiðuð hönnun, hvar byrja ég?
Margrét Dóra Ragnarsdóttir, sjálfstætt starfandi stafrænn hönnunarstjóri
13:40-14:00 Kaffihlé
14:00-15:30 Hvernig virkar notendamiðuð hönnun í raun?
Stanford d. School crash course
15:30-15:40 Samantekt
15:40-16:30 Léttar veitingar - Miðgarði
Ari Eldjárn kitlar hláturstaugarnar
Ráðstefnustjóri: Helga Guðrún Jónasdóttir, Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Innifalið í verði eru kaffiveitingar, létt hádegishlaðborð og kokteill í lok dags.
Verð fyrir félagsmenn Ský: 15.000 kr.
Verð fyrir utanfélagsmenn: 20.000 kr.
-
6. desember 2018