Áskoranir við rekstur Office 365
Hádegisfundur á Grand hóteli (Gullteig)
16. maí kl. 12-14
Áskoranir við rekstur Office 365
Twitter: @SkyIceland #Office365Sky
Fjallað verður um hvernig hægt er að nýta þjónustur Office 365 í mun meira en eingöngu tölvupóstsamskipti. Þjónustur eins og PowerApps, Flow, Azure Active Directory og fleira.
Fundurinn er opinn öllum þeim sem áhuga hafa á málefninu svo sem þeim sem bera ábyrgð á upplýsingatækni fyrirtækja og vilja nýta sér Office 365 í meira mæli.
Dagskrá:
11:50 Húsið opnar
12:05 Fundur settur og hádegisverður borinn fram
12:20 Tölvuárásir með phising póstum og varnir gegn þeim
Dæmisaga hvernig tölvuárás (phising) gengur fyrir sig og hvaða varnir eru gegn þeim í Microsoft 365 heiminum.
Guðmundur Pétur Pálsson, Microsoft ráðgjafi, Opin kerfi
12:50 Uppsetning á rafrænum verkferlum í Office 365
Farið verður yfir raunverulegt dæmi hvernig hægt er að setja upp rafræna verkferla og sjálfvirkni með þeim lausnum sem fyrirtæki hafa aðgang að í Office 365. Tekið verður raunverulegt dæmi þar sem starfsmenn á verksmiðjugólfi geta skráð inn atvik, beiðnir og sinnt verkefnum með símann einan að vopni.
Sigurjón Hákonarson, framkvæmdastjóri, OZIO
13:20 Hvernig stýrir þú aðgengi að geimskipinu þínu
Í vaxandi mæli er sótt í utanaðkomandi þjónustur, þar á meðal skýjaþjónustur, og því fylgir flækjustig og vandi varðandi auðkenningu. Fjallað verður um þennan auðkenningarvanda og hvernig nýta má Federated Identity, sem er öruggt samskiptaform fyrir aðgang að mörgum ótengdum kerfum og þjónustum með einu auðkenni, til að takast á við hann.
Jörg Kuck, Miracle
13:50 Umræður
14:00 Fundarslit
Fundarstjóri: Sonja Ýr Eggertsdóttir, markaðsstýra hjá Þekkingu
Undirbúningsnefnd: Stjórn faghóps Ský um rekstur tölvukerfa
Matseðill: Lönguhnakkar med humarsósu. Sætindi / kaffi /te á eftir.
Verð fyrir félaga Ský: 5.900 kr.
Verð fyrir utanfélaga: 9.700 kr.
-
16. maí 2018