Samfélagsmiðlar
Hádegisfundur á Grand hóteli
3. maí kl. 12 - 14
"Samfélagsmiðlun og áhrifavaldar í stafrænni markaðssetningu"
@SkyIceland #Samfelagsmidlar
Fjallað verður um stefnur og strauma á samfélagsmiðlum og hvernig fyrirtæki geta nýtt sér áhrifavalda í stafrænni markaðssetningu. Fyrirlesarar frá Tagplay, CCP, Guide to Iceland og Áttunni segja okkur reynslusögur sínar og gefa innsýn í ólíkar aðferðir við að nýta sér samfélagsmiðla í markaðssetningu.
Þessi hádegisfundur er upplagður fyrir þá sem vinna að vef- og markaðsmálum og alla aðra sem hafa áhuga á málefninu.
Dagskrá:
11:50-12:05 Afhending gagna
12:05-12:20 Fundur settur og hádegisverður borinn fram
12:20-12:40 Samfélagsmiðlar og áhrifavaldar. Yfirlit og þróun
Sesselja Vilhjálmsdóttir, Tagplay
12:40-13:00 Áhrif áhrifavalda á áhorfendur. Ánægja. Árangur. Áhugi.
Arnar Gísli Hinriksson, CCP
13:00-13:20 Samfélagsmiðlar og ferðabransinn
Ása Steinarsdóttir, Guide to Iceland
13:20-13:40 Áttan - afþreyingarmerki á samfélagsmiðlunum
Nökkvi Fjalar Orrason, Áttan
13:40-14:00 Pallborðsumræður
14:00 Fundarslit
Fundarstjóri: Berglind Festival
Undirbúningsnefnd: Stjórn faghóps Ský um vefstjórnun
Matseðill: Timjan-sítrus marineruð kjúklingalæri með bygg, rótargrænmeti og með meðalsterkri soðsósu. Sætindi / kaffi /te á eftir.
Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský: 5.900 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn: 9.700 kr.
Þátttökugjald fyrir aðila utan vinnumarkaðar: 4.000 kr.
-
3. maí 2017