Heilbrigðisráðstefnan
Heilbrigðisráðstefnan Á GRAND HÓTELI
miðvikudaginn 22. febrúar 2017 kl. 12-14:30
"Hugræn tölvun (e. COGNITIVE COMPUTING)
og áhrif hennar á heilbrigðiskerfi framtíðarinnar"
Heilbrigðiskerfi framtíðarinnar standa frammi fyrir stórum áskorunum. Aukið langlífi, sífelld krafa um enn betri þjónustu og undirliggjandi þrýstingur um aukna hagkvæmni skapa ný vandamál sem þarfnast lausna. Á sama tíma og upplýsingamagn hefur aldrei verið meira er sífellt minni tími sem gefst í að skilja það og beita í skýrum tilgangi. Á sama tíma er ör þróun í tölvutækni sem safnar ekki bara saman upplýsingum - heldur skilur, lærir og aðstoðar við að breyta upplýsingum í raunverulega þekkingu. Þetta er hugræn tölvun (cognitive computing).
Markmið heilbrigðisráðstefnunnar er að skoða betur þessi vandamál sem heilbrigðiskerfi nútímans stríðir við og kanna hvort ný þróun í hugrænni tölvun sé raunverulega með einhver svör við þeim.
Lykilfyrirlesari er Anders Quitzau, IBM Watson Advocate. Hann er sérfræðingur frá IBM í Watson og hefur rannsakað í þaula hvernig hugræn tölvun getur haft áhrif á heilbrigðiskerfi framtíðarinnar. Einnig verða fulltrúar frá íslensku heilbrigðskerfi sem munu lýsa betur þeim vandamálum tengdu magni upplýsinga og gagna sem blasa við þeim í sínu daglega starfi.
Dagskrá:
11:50 - 12:00 Afhending gagna
12:05 - 12:20 Hádegisverður borinn fram
12:20 - 12:45 IBM Watson
Anders Quitzau, IBM Watson Advocate
12:50 - 13:10 Upplýsingaflóð – nýtist það við eftirlits- og meðferðaákvarðanir?
Dr Björn Guðbjörnsson, gigtarlæknir og prófessor við læknadeild
13:15 - 13:35 Stuðningskerfi við klíníska ákvarðanatöku
Daníel Ásgeirsson, hjarta- og nýrnalæknir
13:40 - 14:00 Áhættureiknir við meðhöndlun sjúklinga með mergæxli
Sölvi Rögnvaldsson, nemandi við HÍ og verðlaunahafi nýsköpunarverðlauna forseta Íslands
14:00 - 14:30 Spurningar og umræður
Ráðstefnustjóri: María Heimisdóttir, Landspítalinn
Undirbúningsnefnd: Stjórn Fókus, faghópur um upplýsingatækni í heilbrigðisgeiranum.
Matseðill: Timjan og sítrónu marineruð úrbeinuð kjúklingalæri með bygg, vorlauk, gulrætum, selleryrót, og diablo sósu.
Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský: 5.900 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn: 9.700 kr.
Þátttökugjald fyrir aðila utan vinnumarkaðar: 4.000 kr.
-
22. febrúar 2017